Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Samúel Karl Ólason skrifar 4. febrúar 2026 15:38 Bill Gates segist hafa snætt nokkrum sinnum með Jeffrey Epstein og að markmiðið hafi verið að afla peninga til góðgerðarmála. AP/Evan Vucci Bandaríski auðjöfurinn og mannvinurinn Bill Gates segist sjá eftir hverri mínútu sem hann varði með auðjöfrinum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Hann segir kolrangt að hann hafi notað Epstein til að hafa mök við konur og hafi smitast af kynsjúkdómi. Það sé þvæla og Gates segist ekki vita hvað Epstein gekk til með því að skrifa það niður í tölvupósta sem hann sendi aldrei út.
Í viðtali við 9News í Ástralíu sagðist Gates hafa kynnst Epstein árið 2011, sem er tiltölulega stuttu eftir að hann lauk afplánun í kjölfar umdeilds samkomulags þar sem hann játaði að hafa haft mök við ólögráða stúlku. Sjá einnig: Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Gates sagðist hafa snætt nokkrum sinnum með Epstein á næstu þremur árum en hann hafi aldrei heimsótt einkaeyju hans eða haft mök við einhverjar konur. „Áherslan var alltaf sú, að hann þekkti mikið af mjög auðugu fólki og hann sagðist geta fengið það til að gefa peninga til alþjóðaheilbrigðismála,“ sagði Gates. Hann bætti við að eftir á hyggja væri ljóst að slíkt hefði aldrei orðið. Sjá einnig: Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum „Það var heimskulegt af mér að verja tíma með honum. Ég er einn fjölmargra sem sjá eftir því að hafa nokkurn tímann kynnst honum.“ Sendi sjálfum sér tvo pósta um Gates Í Epstein-skjölunum má finna póst sem Epstein virðist hafa sent sjálfum sér en hann er skrifaður eins og uppsagnarbréf, þar sem Epstein segist vera að hætta störfum hjá góðgerðasjóði Bill og Melindu Gates, þáverandi eiginkonu auðjöfursins. Pósturinn var skrifaður í júlí 2013. Þar skrifar Epstein að hann hafi hjálpað Gates að verða sér úti um lyf vegna sjúkdóms sem hann hafi fengið eftir að hafa haft mök við rússneskar stúlkur. Epstein skrifar einnig að hann hafi hjálpað Gates að hafa mök við giftar konur og fleira. Hinn tölvupóstinn skrifar Epstein þann sama dag, í júlí 2013. Pósturinn hefst á orðunum „Kæri Bill“ og segist Epstein ekki trúa því að Gates hafi bundið enda á vinskap þeirra sem hafi myndast á undangengnum sex árum. Epstein kvartar í póstinum yfir því að vera kastað til hliðar og varpar fram ýmsum ásökunum í garð Gates, eins og þeirri að Gates hafi fengið hann til að hjálpa sér vegna kynsjúkdóms og að lauma sýklalyfjum til Melindu Gates. Epstein bendir á að aðstoðarmaður Gates hefði kvartað við sig yfir „siðferðislega óviðeigandi“ lifnaðarháttum Epsteins. Eins og fyrri póstinn, sendi Epstein hann á sjálfan sig. Í viðtalinu við 9News segir Gates að ekki standi steinn yfir steini í þessum póstum. Hann segist ekki vita hvað Epstein hafi gengið til og hvort hann hafi áætlað sér að nota póstana til að veitast að sér á einhvern hátt. Allt viðtalið við Gates má finna hér. Styttri útgáfu þar sem fjallað er sérstaklega um Epstein má sjá í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Sjá meira