Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 09:29 Það hafa verið yfir hundrað erlendir leikmenn í Bónusdeildunum í vetur, þar af næstum því fjörutíu í kvennadeildinni. Vísir/Hulda Margrét Íslensk körfuboltafélög eru að eyða svakalegum upphæðum í erlenda atvinnumenn samkvæmt Grími Atlasyni. Alls hafa 109 erlendir leikmenn sem hafa komið við sögu í Bónusdeildunum á tímabilinu 2025-26.
Grímur Atlason hefur starfað í einn og hálfan áratug í stjórnum körfuboltadeilda og þekkir því hvaða kostnaður fylgir því að fá erlendan leikmann í sitt lið en hann hefur verið í körfuknattleiksdeild Vals og styður sitt mál væntanlega með þekkingu í rekstur þeirrar körfuknattleiksdeildar.Grímur hefur áður varað við þeirri þróun hjá íslenskum körfuboltafélögum að eyða gríðarlegum upphæðum í erlenda atvinnumenn í deild sem á að vera áhugamannadeild en er langt frá því að vera það. „Stefnulaus körfubolti – botnlaust bruðl“ Nú er búið að loka félagsskiptaglugganum í Bónus-deildum karla og kvenna en hingað til í vetur hafa erlendir leikmenn komið, farið og jafnvel farið í önnur íslensk félög. Grímur hefur tekið saman athyglisverða tölfræði um komu og kostnaðinn við að fá alla þessa erlendu leikmenn til þeirra félaga sem eiga lið í efstu deild í íslenskum körfubolta. Hann setti þessa samantekt sína inn á samfélagsmiðla undir fyrirsögninni „Stefnulaus körfubolti – botnlaust bruðl.“ Vert er að taka fram að ekkert er staðfest í þessum tölum nema tölur um félagaskiptagjald. 109 erlendir leikmenn í vetur „Á yfirstandandi keppnistímabili hefur 71 erlendur leikmaður verið skráður til leiks í úrvalsdeild karla. Af þeim eru 48 hér enn. Kvennamegin hafa 38 erlendir leikmenn verið skráðir til leiks á þessu tímabili. Af þeim eru 30 hér enn,“ skrifaði Grímur. Samkvæmt hans útreikningum þá hafa íslensk félög eytt í kringum 1,2 milljörðum króna í erlenda leikmenn á leiktíðinni. Bara KKÍ hefur fengið inn tæpar 33 milljónir króna í félagsskiptagjöld.„Það skal tekið fram að þetta er áætlun byggð á þekkingu minni af rekstri körfuknattleiksdeildar í 15 ár. Hugsanlega náðu einhver þessara liða frábærum samningum við einhverja leikmenn. Eftir þessi útgjöld eiga félögin eftir að borga laun íslenskra leikmanna, þjálfara, sjúkraþjálfara, styrktarþjálfara, dómara, leigu á íþróttahúsum, greiða fyrir auglýsingar, sektir, ferðalög, búninga og margt fleira,“ skrifaði Grímur. Ungmennafélög með almannaheillaskráningu „Það er eitthvað verulega bogið við það að 13 ungmennafélög með almannaheillaskráningu telji það eðlilegasta hlut í heimi að borga rúmlega 1,2 ma.kr. vegna erlends vinnuafls í keppni þar sem verðlaunaféð er ein milljón króna frá Bónus og 500 þúsund frá VÍS ef þú skyldir vinna bikarinn,“ skrifaði Grímur. „Ef það er sett í samhengi, má setja það í miðasölusamhengi. Gefum okkur að hvert lið úr úrvalsdeild karla keppi 16 heimaleiki (meðaltal) á tímabili. Þurfa þau þá að selja miða fyrir 4,6 m.kr. á hverjum leik bara til að borga kostnað við erlenda leikmenn. Það þýðir að selja þarf 1533 miða á 3.000 kr. hvern leik. Kvennamegin má gera ráð fyrir 16 leikjum og þar þarf að selja miða fyrir 2,2 m.kr. Það næst með því að selja 733 miða á hvern leik. Þegar farið er yfir skráningar áhorfenda á leiki má sjá að seldir miðar eru nær 50-200 á hverjum leik. Og þá á eftir að borga allt hitt…,“ skrifaði Grímur.Hér fyrir neðan má sjá pistilinn og nánari útlistun á kostnaðinum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Mest lesið Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Fótbolti „Íslenski Haaland“ með þrennu í fyrsta leik Fótbolti Fleiri fréttir Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt Sjá meira