Leik lokið: Kefla­vík - Grinda­vík 92-83 | Kefla­vík bikar­meistari eftir sigur á Grinda­vík

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Valur - Keflavík Bónusdeild kvenna í Körfubolta 2024-2025
Valur - Keflavík Bónusdeild kvenna í Körfubolta 2024-2025 VÍSIR/VILHELM

Keflavík stóð uppi sem bikarmeistari eftir sigur á Grindavík í úrslitaleik VÍS bikarsins í kvöld, 91-83. Leikurinn var jafn framan af en Keflvíkingar náðu undirtökunum í þriðja leikhluta og litu ekki um öxl eftir það.

Leikurinn byrjaði af krafti hjá báðum liðum og var allt í járnum fyrstu sex mínútur fyrsta leikhluta. Þá steig Thelma Dís Ágústsdóttir fram og setti tvo þrista í röð og náðu Keflavík þá í kjölfarið að slíta sig frá Grindavík. Keflvíkingar héldu forystunni út leikhlutann sem endaði, 27-21.

Forysta Keflavíkur hélt áfram inn í annan leikhluta og neyddist Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, þá að taka leikhlé. Eftir það komu Grindvíkingar af krafti til baka og tveimur mínútum síðar höfðu þær snúið leiknum sér í vil. Grindavík tókst að halda forystunni út leikhlutann og var staðan í hálfleik, 45-47 fyrir Grindavík.

Keflavík tókst að jafna metin í fyrstu sókn sinni í þriðja leikhluta og skiptust liðin svo á að vera yfir. Sofie Tryggedsson setti svo niður tvo þrista í röð líkt og gerðist í fyrsta leikhluta og náðu Keflvíkingar þá góðum tökum á leiknum. Leikhlutanum lauk þá með tíu stiga forystu Keflavíkur, 70-60.

Keflavík hélt um tíu stiga forskot sitt nánast allan fjórða leikhluta og virtist forystan aldrei vera í neinni alvöru hættu. Lokatölur 92-83 og Keflavík bikarmeistari 2026.

Atvik leiksins

Ekkert sérstakt atvik sem stendur upp úr. Spilamennska Keflavíkur í seinni hálfleik var þó frábær.

Stjörnur og skúrkar

Keishana Washington var hreint út sagt frábær fyrir lið Keflavíkur með 36 stig, 8 fráköst og 11 stoðsendingar.

Farhiya Abdi var þá frábær í liði Grindavíkur en hún var með 29 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar. 

Stemning og umgjörð

Það var troðfull höll og góð stemning frá fyrstu mínútu. Stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra og umgjörðin var til fyrirmyndar.

Dómarar

Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson og Jakob Árni Ísleifsson stóðu vaktina á parketinu í Smáranum í kvöld. Lítið um vafamál og nokkuð auðveld vakt  býst ég við.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira