„Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Bjarki Sigurðsson skrifar 9. febrúar 2026 19:02 Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu. Vísir/Anton Brink Maður sem grunaður er um stunguárás um helgina var nýbúinn að afplána dóm fyrir önnur ofbeldisverk og sætir ákæru fyrir fleiri. Formaður Afstöðu gagnrýnir að manninum hafi verið sleppt úr haldi án þess að honum væri veittur stuðningur.
Í gær var Gabríel Douane, 24 ára, handtekinn, grunaður um stunguárás í miðbæ Reykjavíkur á laugardagskvöld. Tveir aðrir voru handteknir en þeim síðar sleppt úr haldi. Gabríel var í dag úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald vegna málsins. Í tilkynningu lögreglu segir að brotaþoli sé útskrifaður af slysadeild. Ekkert bíði fanga Samkvæmt heimildum fréttastofu lauk Gabríel afplánun vegna ýmissa brota í síðustu viku. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, segir fjölda fanga þurfa á eftirfylgni að halda eftir afplánun og þannig sé hægt að koma í veg fyrir brot sem þetta. Hann gat þó ekki tjáð sig um þetta einstaka mál heldur talaði á almennum nótum. „Almennt séð koma svona mál okkur ekki á óvart. Það er svolítið fyrirsjáanlegt í nánast hundrað prósent tilfella, hvað gerist á næstu misserum eftir að fólk losnar úr afplánun. Hins vegar erum við á þeim stað að fangelsismál eru í ólestri. Það er engin endurhæfing. Það er ekkert sem tekur við og það er enginn sem ber ábyrgð. Þar af leiðandi erum við í þessari stöðu. Við erum með fólk sem vill taka á sínum málum en fær ekki stuðning til að gera það. Þá endum við oft í svona aðstæðum,“ segir Guðmundur. Stjórnvöld loki augunum „Þetta er það sem við erum að sjá á Íslandi. Þetta er hringiðja neyslu, afbrota og fangelsis. Þetta er vitað mál, þetta er ekkert nýtt. Það er búið að benda á þetta í áratugi. Við eigum að geta gert miklu betur en því miður er þessi málaflokkur þannig að stjórnvöld hafa litið á hann sem aukahlut. Það er lítið að gerast, því miður.“ Þetta mál sé alls ekkert einsdæmi. „Það eru auðvitað alltaf einhverjir sem eru að koma úr afplánun hverju sinni sem við höfum áhyggjur af. Þeir koma úr afplánun og beint á götuna. Við vitum alltaf hvernig það endar. Við erum orðin þreytt á að segja frá því,“ segir Guðmundur.
Fangelsismál Félagsmál Lögreglumál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira