Handbolti

Vann mömmu sína þegar mæðgur mættust á Akur­eyri

Sindri Sverrisson skrifar
Mæðgurnar Ólöf Maren Bjarnadóttir og Selma Sigurðardóttir Malmquist voru glaðbeittar eftir að hafa mæst á handboltavellinum.
Mæðgurnar Ólöf Maren Bjarnadóttir og Selma Sigurðardóttir Malmquist voru glaðbeittar eftir að hafa mæst á handboltavellinum. KA Akureyri

Þegar KA/Þór og ÍBV mættust í Olís-deild kvenna í handbolta á mættust mæðgurnar Selma Sigurðardóttir Malmquist og Ólöf Maren Bjarnadóttir, sem báðar eru markverðir.

Það var dóttirin Ólöf Maren, sem er uppalin hjá KA og KA/Þór, sem að lokum fagnaði öruggum sigri með liði sínu ÍBV, 32-22.

Hún tók líka aðeins meiri þátt í leiknum en mamma hennar og varði tvö skot af fjórum sem hún fékk á sig, þar af eitt víti, samkvæmt tölfræðinni hjá HB Statz.

Selma, sem verður 44 ára í maí, fékk eitt skot á sig en gerði sér lítið fyrir og varði það fyrir Akureyrarliðið.

Á Facebook-síðu KA er bent á að tengingin nái enn lengra því Herdís Eiríksdóttir, sem leikur með KA/Þór og kom norður frá ÍBV, sé systir barnsföður Ólafar.

Sigurinn þýðir að ÍBV er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Vals, með 26 stig, en KA/Þór er í 6. sæti með 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×