Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 14:28 Chappell Roan hefur sagt skilið við umboðsskrifstofuna Wasserman. Amy Sussman/Getty Images Tónlistarkonan og súperstjarnan Chappell Roan hefur sagt skilið við umboðsmann sinn hjá Wasserman Agency vegna tenginga hans við skjöl siðblinda milljarðamæringsins Jeffrey Epstein.
Casey Wasserman forstjóri stofunnar átti í heldur erótískum eða í það minnsta vel óviðeigandi tölvupóstssamskiptum við illkvendið Ghislaine Maxwell sem er hvað frægust fyrir að vera hægri hönd Epstein í öllum hans ógeðfelldu málum. Wasserman var giftur á þeim tíma. Þá á hann sömuleiðis að hafa eitt sinn flogið um borð í einkaþotu á vegum Epstein í góðgerðaferð árið 2002. Skandalarnir eru fleiri og var Wasserman meðal annars ásakaður um að hafa átt í framhjáhald við yngri starfskonur sínar. Chappell Roan vill ekki tengjast þessum manni á neinn hátt en ítrekar þó að margir góðir starfi hjá umboðsskrifstofunni. „Frá og með deginum í dag er ég ekki lengur hjá umboðsskrifstofu Wasserman,“ skrifar Roan á Instagram hringrás sína. „Ég hef mjög háa standarda fyrir mitt teymi og sömuleiðis er mér skylt að vernda mitt fólk. Enginn listamaður, umboðsmaður eða starfsmaður á að þurfa að verja eða líta fram hjá svona flækjum sem stinga algjörlega í stúf við gildi manns.“ Chappell Roan stendur með sjálfri sér og sínum gildum. Amy Sussman/Getty Images Hún segist bera gríðarlega mikla virðingu fyrir umboðsmönnum og starfsfólki sem gerir allt fyrir listamenn og neitar að láta vaða yfir sig og fólkið í kringum sig. „Þessi ákvörðun endurspeglar trú mína á því að þýðingarmikil og mikilvæg breyting í okkar bransa þarfnast nauðsynlega þess að fólk geti axlað ábyrgð og sýnt leiðtogahæfni sem leiðir af sér traust.“
Tónlist Hollywood Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira