Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Bjarki Sigurðsson skrifar 10. febrúar 2026 18:56 Alda Hrönn Jóhannsdóttir er yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjóra á Suðurnesjum. Vísir/Ívar Fannar Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Meðlimir samtakanna eru taldir hafa skipulagt innflutning á meðan þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi.
Málið teygir anga sína víða um heim. Efnin voru flutt til Evrópu frá Suður-Ameríku og 24 handteknir í samræmdum aðgerðum löggæsluyfirvalda í Evrópu. Ellefu á Íslandi, sex í Litáen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Hagnaður samtakanna var þvættaður í gegnum fasteignir í Litáen. Lögregluyfirvöld í Dóminíska Lýðveldinu aðstoðuðu við rannsókn málsins. Lögreglan vonast til að hafa þarna upprætt hringinn og að þetta hefði ekki verið mögulegt án öflugs alþjóðlegs samstarfs. Færið músina yfir löndin eða smellið á þau í síma til að sjá fjölda handtekinna. Komust ansi langt Lögreglan vonast til að hafa þarna upprætt hringinn og að þetta hefði ekki verið mögulegt án öflugs alþjóðlegs samstarfs. „Við komumst ansi langt varðandi þann anga sem tengist Íslandi og í rauninni öðrum löndum líka,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum. Símtæki á Litla-Hrauni Hluti hinna handteknu eru ríkisborgarar annarra ríkja, en ekki allir. Níu af ellefu sátu þegar í fangelsi þegar ráðist var í aðgerðirnar og hinum tveimur hefur verið sleppt úr landi. Í fangaklefum fimm þeirra fundust símtæki sem þeir eru taldir hafa notað í áframhaldandi skipulagningu brotastarfseminnar. Talið er að samtökin beri ábyrgð á stórum hluta þeirra hundrað kílóa af kókaíni sem lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á á síðasta ári. „Markmiðið var alltaf skýrt, að reyna að finna og skilgreina þennan hóp. Þá hlutverk hvers og eins í því skyni að stoppa lekann í fötunni,” segir Alda Hrönn.
Fíkniefnabrot Lögreglumál Fangelsismál Danmörk Spánn Litáen Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira