Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 11:38 Diljá Mist segist þekkja það á eigin skinni hvernig það er að vera kona með ung börn. Hún segir að tími sé kominn til að létta undir með barnafjölskyldum en hún hefur nú lagt fram ýmsar tillögur þess efnis. Vísir/Ívar Fannar Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kveðst hafa þungar áhyggjur af stöðu barnafjölskyldna í landinu og hefur lagt fram frumvörp til að létta undir með þeim. Hún vill afnema virðisaukaskatt á barnavörur og gefa foreldrum skattafrádrátt vegna tómstunda barna þeirra, svo fátt eitt sé nefnt.
Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins stóð fyrir sérstakri umræðu um stöðu barnafjölskyldna í landinu á Alþingi í gær en samhliða lagði hún fram frumvörp sem fjalla um að bæta stöðu barnafjölskyldna. „Við í Sjálfstæðisflokknum höfum þungar áhyggjur af stöðu barnafjölskyldna í þessu efnahagsástandi. Skattar eru allt of háir á barnafjölskyldur og við höfum verið að leggja til tillögur til þess að létta á þessum byrðum.“ Ein af þessum tillögum snýr að húsnæðismálunum. „Meðal annars afnám stimpilgjalda, sem kemur sér auðvitað sérstaklega vel fyrir barnafjölskyldur sem að þurfa stærra húsnæði, og frjálsari ráðstöfun á séreignarsparnaði. En síðan höfum við líka verið að skoða tekjur fjölskyldna og viljað auka ráðstöfunartekjur með því að leggja til frádráttarheimildir, meðal annars vegna útgjalda vegna tómstunda barna, svona almenna frádráttarheimild og frádráttarheimild frá skattstofni út af aðstoð við heimili, til dæmis varðandi umönnun barna. Og svo erum við með þingmál sem snýr að afnámi virðisaukaskatts á barnavörur og þá erum við að tala um bleyjur, barnabílstóla og barnaföt og þar fram eftir götunum.“ Stjórnvöld hafi skilið barnafjölskyldur eftir Diljá var spurð hvað hefði orðið til þess að hún fann hjá sér þörf til að láta til sín taka í þessum málaflokki. „Ég þekki þetta auðvitað á eigin skinni. Ég er auðvitað kona með ung börn og margir í kringum mig, þannig að ég þekki þessa umræðu vel. Við höfum áhyggjur af stöðunni í þessu efnahagsástandi og ríkisstjórnin hefur auðvitað verið að grípa til svona sértækra aðgerða á útgjaldahliðinni, reynt að ná utan um svona afmarkaðri hópa, en við teljum að þessi hópur hafi orðið svolítið eftir og við erum auðvitað pikkföst í þessu ástandi hárrar verðbólgu og hárra vaxta og þetta eru bara aðgerðir sem að við leggjum þunga áherslu á.“ Hér er hægt að lesa nánar um efni frumvarpa Diljár og félaga hennar í Sjálfstæðisflokknum: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (núllskattur á barnavörur) og frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (frádráttur vegna tómstunda barna)
Börn og uppeldi Skattar, tollar og gjöld Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Lækkum skatta á barnafjölskyldur Verðbólgan og vaxtastigið eru löngu farin að bíta illilega og gríðarlegar skattahækkanir á almenning í boði ríkisstjórnarinnar koma því illa við heimilin í landinu. 11. febrúar 2026 07:32 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira
Lækkum skatta á barnafjölskyldur Verðbólgan og vaxtastigið eru löngu farin að bíta illilega og gríðarlegar skattahækkanir á almenning í boði ríkisstjórnarinnar koma því illa við heimilin í landinu. 11. febrúar 2026 07:32