Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Freyja Þórisdóttir og Lovísa Arnardóttir skrifa 12. febrúar 2026 16:21 Nokkrir tugir stúdenta komu sér fyrir með mótmælaspjöld í aðalbyggingu Háskóla Íslands í aðdraganda fundarins sem hófst klukkan 13 og lauk um fjögurleytið. Vísir/Bjarni Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Stúdentahreyfingin Röskva hélt mótmæli í dag fyrir utan háskólaráðsfund í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Í fundi háskólaráðs var staðfest ákvörðun um að hækka skrásetningargjald skólans um þriðjung. Gjaldið hefur verið 75 þúsund krónur frá 2013 en verður nú hækkað í 100 þúsund krónur. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra tilkynnti um hækkunina í haust og er ákvörðun háskólaráðs tekin í samræmi við lagabreytingu sem heimilar opinberum háskólum að rukka allt að 100 þúsund krónur í skrásetningargjöld. Stúdentahreyfingarnar Röskva og Vaka hafa báðar mótmælt hækkununum harðlega. Ármann Leifsson forseti Röskvu sagði í viðtali við Vísi í dag að nemendum þætti óásættanlegt að þeir eigi að borga brúsann. Frá fundi háskólaráðs í dag. Vísir/Bjarni Völdu opinbert nám „Við erum í raun bara að mótmæla því að færa eigi vanfjármögnun háskólanna, sem er búin að vera stöðug í um áratug, yfir á nemendur,“ bætti Ármann við og að nemendur hafi áhyggjur af því að hækkunin sé aðeins sú fyrsta af mörgum. Þannig hafi það verið þegar gjöldin voru hækkuð síðast. Hann ítrekar að það sé ekki stúdentanna að fjármagna skólann. „Við völdum opinbert nám mörg vegna þess að það yrði ekki jafn dýrt. Sum okkar eiga ekki efni á námi við Háskólann í Reykjavík.“ Í tilkynningu frá Röskvu vegna mótmælanna segir að þegar stúdentahreyfingin hafi verið í meirihluta Stúdentaráðs Háskóla Íslands á árunum 2017 til 2024 hafi þeim tvívegis tekist að koma í veg fyrir áform stjórnvalda um slíka hækkun, árin 2020 og 2022. „Röskva mótmælir hækkun gjaldsins á þeim grundvelli að hækkunin skerði jafnt aðgengi að námi, en Röskva var stofnuð til að standa vörð um það.“ Stúdentar voru með skilti á mótmælunum. Aðsend Samkvæmt tilkynningu mun umboðsmanni Alþingis fljótlega berast kvörtun vegna málsins frá Jessýju Jónsdóttir. „Að mati Röskvuliða er lausnina á fjárhagsvanda Háskóla Íslands ekki að finna í vösum stúdenta, heldur sé það á ábyrgð stjórnvalda að fjármagna opinbera háskólamenntun,“ segir í tilkynningu Röskvu. Þar kemur einnig fram að á mótmælunum hafi Röskvuliðar prentað út og límt undirskriftalista á gólf rektorsgangs, þar sem fundurinn átti sér stað. Listinn hafi verið undirritaður af fleiri en þúsund manns. Töluverður fjöldi var mættur til að mótmæla. Aðsend Andri Már Tómasson, fulltrúi stúdenta í háskólaráði og Röskvuliði, lagði fram bókun á fundinum þar sem hann sagðist harma að Háskóli Íslands ætli að seilast í vasa stúdenta til að fylla upp í stækkandi hyldýpi vanfjármögnunar. „Málflutningur stúdenta hefur verið skýr í fjölda ára. Við teljum enn að skrásetningagjöldin séu byggð á ólögmætum grunni og hefur verið óskað eftir því að umboðsmaður Alþingis taki málið til skoðunar. Íslenska ríkið er ábyrgt fyrir fjármögnun Háskóla Íslands, ekki stúdentar,“ segir að lokum í bókun hans. „Það er auðvitað ósanngjarnt að þessi kostnaður falli á stúdenta og það er okkar verkefni að vinna með þeim að því að þrýsta á stjórnvöld um að fjármagna háskólastigið betur,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í tilkynningu á vef háskólans um málið. Þar er birt ný gjaldskrá háskólans sem nú hefur tekið gildi. Gjaldskrá Háskóla Íslands eftir breytingar á skrásetningargjöldum er svohljóðandi: Skrásetningargjald: kr. 100.000 Skrásetningargjald – nýskráning á vormisseri: kr. 75.000 Skrásetningargjald – gestanemandi á samningi: kr. 15.000 Skrásetningargjald – gestanemandi án samnings: kr. 30.000 Skrásetningargjald – í leyfi: kr. 15.000 Skrásetningargjald – úr leyfi: kr. 85.000 Lagt er 15% álag á skrásetningargjald sé það greitt utan auglýsts greiðslutímabils. Öryrkjar fá 25% afslátt af skrásetningargjaldi. Fréttin hefur verið uppfærð, bæði með tilkynningu Röskvu og svo aftur með tilkynningu háskólans.
Háskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira