Jagland ákærður fyrir spillingu Kjartan Kjartansson skrifar 12. febrúar 2026 13:22 Þorbjörn Jagland var forsætisráðherra Noregs fyrir hönd Verkamannaflokksins og síðar framkvæmdastjóri Evrópuráðsins og formaður norsku Nóbelsnefndarinnar. Vísir/EPA Þorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var ákærður fyrir spillingu og húsleit gerð á heimili hans í morgun. Hann vildi ekki tjá sig við fjölmiðla en fjallað hefur verið um tengsl Jagland við Jeffrey Epstein, bandaríska barnaníðinginn, undanfarna daga.
Efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar gerði húsleit í íbúð Jagland í Osló, húsi í Risør og sumarbústað í Rauland í Þelamörk, að sögn norska ríkisútvarpsins. Í kjölfari var ákæra gefin út á hendur honum fyrir stófellda spillingu. „Það eina sem ég hef að segja er að ég er mjög ánægður með að það sé verið að greiða úr málinu,“ sagði Jagland við fréttamenn þegar hann yfirgaf íbúð sína í hádeginu. Jagland er sakaður um að hafa þegið gjafir og hlunnindi þegar hann var framkvæmdastjóri Evrópuráðsins frá 2009 til 2019. Ráðið samþykkti að svipta hann friðhelgi sem hann naut í krafti fyrrum stöðu sinnar í gær. Epstein virðist hafa greitt undir fjölskyldu Jaglands Sakirnar byggja á upplýsingum sem komu fram í skjölum sem bandarísk stjórnvöld birtu um rannsókn sína á Epstein. Jagland átti í samskiptum við Epstein og fjöldskylda Norðmannsins dvaldi meðal annars í húsi Epstein á Flórída á sínum tíma. Það var eftir að Epstein var dæmdur fyrir kynferðisbrot árið 2008. Á meðal þess sem norska lögreglan rannsakar er hvort að Jagland og fjölskylda hans hafi nýtt sér íbúðir Epstein í París og New York nokkrum sinnum á árunum 2011 til 2018 auk þess að dvelja í villu hans á Pálmaströnd á Flórída. Epstein virðist hafa greitt fyrir fjölskyldu Jagland í að minnsta kosti einni ferð. Hann bauðst einnig til að greiða kostnað hans við ferð til Karíbahafs sem ekkert varð úr. Þá er Jagland sagður hafa beðið Epstein um hjálpa við að fá bankalán.
Noregur Mál Jeffrey Epstein Erlend sakamál Tengdar fréttir Jagland sviptur friðhelgi Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu. 11. febrúar 2026 09:41 Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu. 9. febrúar 2026 14:28 Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43 Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
Jagland sviptur friðhelgi Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu. 11. febrúar 2026 09:41
Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu. 9. febrúar 2026 14:28
Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er til rannsóknar hjá norsku efnahagslögreglunni vegna gruns um spillingu þar sem Epstein-skjölin hafa varpað nýju ljósi á samband hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 5. febrúar 2026 22:43
Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda. 2. febrúar 2026 13:03