„Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2026 14:31 Ryan Wedding, hinn svokallaði eftirlýsti ólympíufari, við komuna til Bandaríkjanna. Hann var handtekinn í Mexíkó í síðasta mánuði. AP/FBI Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil.
Wedding en hann keppti árið 2002 fyrir hönd Kanada á Vetrarólympíuleikunum. Hann er nú 44 ára gamall og hafði verið á flótta frá yfirvöldum í Bandaríkjunum og Kanada í meira en áratug þegar hann var handtekinn í Mexíkó í síðasta mánuði. Hann var fyrst ákærður í Kanada árið 2015 og sakaður um ýmis fíkniefnabrot og að hafa skipulagt og gefið skipanir um morð. Hann var einnig ákærður í Bandaríkjunum 2024 og er sakaður um að hafa stýrt glæpasamtökum sem smygluðu kókaíni frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada. Forsvarsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) höfðu heitið fimmtán milljónum dala fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku hans og var hann einn af þeim tíu mönnum sem þeir vildu mest koma höndum yfir. Sjá einnig: Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Samkvæmt Ríkisútvarpi Kanada (CBC) bjó Clark í Toronto í Kanada en árið 2022 seldi hann hús sitt þar og flutti til Mexíkó. Ekki er vitað hvernig hann kynntist Wedding eða hvenær en saksóknarar í Kaliforníu, þar sem þeir hafa báðir verið ákærðir, segja Clark hafa risið hratt í tign innan glæpasamtaka Weddings og hafi orðið hans hægri hönd. Þá er Clark, sem er 35 ára gamall, sagður hafa stært sig af því árið 2024 að þeir flyttu um tvö til þrjú tonn af kókaíni til Kanada á mánuði. Þetta sagði hann í smáskilaboðum sem saksóknarar komu höndum yfir en í öðrum slíkum lofaði hann launmorðingja 1,5 milljón dali fyrir morð. Clark var handsamaður í Mexíkó í október 2024 í áhlaupi þarlendra öryggissveita og Interpol. Honum var þá lýst af yfirvöldum þar í landi sem skipuleggjanda með tengsl við tvö af stærstu glæpasamtökum landsins, Sinaloa-samtökin, og Jalisco New Generation. Síðarnefndu samtökunum hefur vaxið verulega ásmegin í Mexíkó og víðar á undanförnum árum. Leysti strax frá skjóðunni Nokkrum dögum eftir að Clark var gómaður opinberaði dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna ákærur á hendur honum, Wedding og fjórtán öðrum vegna fíkniefnasmygls þeirra um Norður-Ameríku. Í ákærunni var ítrekað vísað til ónafngreinds heimildarmanns sem átti að hafa unnið með þeim. CBC segir að þessi samverkamaður hafi verið skotinn fimm sinnum í höfuðið af óþekktum morðingja á veitingastað í Medellín í Kólumbíu í janúar 2025. Sá hét Jonathan Acebedo-Garcia og var einnig frá Kanada. Hann reyndist vera heimildarmaður FBI. Í kjölfar morðsins var Wedding hæstánægður með sína stöðu en þá mun kanadískur lögmaður hafa sagt honum að hann væri svo gott sem hólpinn gegn ákærum í Bandaríkjunum. Vitnisburður Garcia hefði skipt saksóknara sköpum. Saksóknarar í Bandaríkjunum voru þó komnir með nýjan heimildarmann. Clark er sagður hafa byrjað að leysa frá skjóðunni nánast um leið og hann var fluttur til Kaliforníu, eftir að hann var handtekinn í Mexíkó. Þá var sími Clarks fullur af mikilvægum upplýsingum en símann hafði hann notað til að tala við Wedding, burðardýr, launmorðingja og aðra samverkamenn. Í símanum fundust til að mynda skilaboð þar sem Clark hafði verið spurður af samverkamanni út í lögreglurannsókn á öðrum manni sem var ekki nefndur á nafn. Clark svaraði: „Sko, ég reyndi að drepa hann lol.“ Þar fundust einnig samskipti við Deppak Paradkar, kanadískan lögmann, sem sakaður er um að hafa spilað stóra rullu í glæpastarfsemi þeirra. Meðal annars er hann sagður hafa fylgst með áhlaupum lögreglu í Kanada og fundið bílstjóra sem gætu smyglað fíkniefnum. Paradkar er þar að auki sakaður um að hafa ráðlagt Wedding og Clark að myrða Garcia, áðurnefndan uppljóstrara FBI. Clark er einnig sagður hafa verið í samskiptum við Rolan Sokolovski, kanadískan skartgripasala, sem er grunaður um að þvætta hundruð milljóna dala af peningum sem fengust fyrir fíkniefnasölu. Báðir neita sök. Ekki liggur fyrir hvað Clark mun fá fyrir aðstoðina, ef eitthvað.
Kanada Bandaríkin Mexíkó Kólumbía Erlend sakamál Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira