„Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Jakob Bjarnar skrifar 16. febrúar 2026 16:11 Guðrún taldi Kristrúnu sýna talsverðan hroka þegar Kristrún benti þingheimi á að lesa greinargerðina. vísir/anton brink Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gerði tilraun í fyrirspurnartíma á Alþingi til að fá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra til að staldra við varðandi frumvarp um tengingu örorkubóta við vísitölu. Kristrún sagðist engar áhyggjur hafa af málinu, hún fagni því.
Guðrún sagði þetta ekki snúast um að vilja eða vilja ekki styðja öryrkja og fólk sem treystir á almannatryggingar. Þau væri hægt að bæta af ábyrgð án þess að setja stóran útgjaldalið ríkisins á sjálfvirka hækkun, bundna við vísitölu. Varnaðarorð úr öllum áttum „Nú er lagt til að setja stóran útgjaldalið ríkisins á sjálfvirka hækkun, bundna við launavísitölu,“ sagði Guðrún og benti á varnaðarorð úr öllum áttum; frá atvinnulífinu, verkalýðshreyfingu, fræðimönnum og mörgum öðrum sem gerst þekkja til. „Nú liggur líka fyrir ný staðreynd: Það var ekki kallað eftir umsögn Seðlabankans áður en þessi vegferð var farin. Þórarinn G. Pétursson [varaseðlabankastjóri peningastefnu] staðfestir það og bendir á að aðrar þjóðir hafi lent í vanda með sambærilegar breytingar,“ sagði Guðrún og spurði, eftir að hafa tilgreint að bæði forsætis- og fjármálaráðherra hefðu hingað til talist virtir hagfræðingar. Guðrún spurði Kristrúnu hvort hún ætlaði sér virkilega að forsmá varnaðarorð sem bærust úr öllum áttum?vísir/anton brink Af hverju var ekki leitað eftir umsögn Seðlabankans þegar stærðargráðan og áhættan eru augljós? Og: Hvers vegna er vilji löggjafans ekki gerður skýr í frumvarpstexta? „Það er flestum ljóst að ákvæði laganna, samkvæmt orðanna hljóðan, tryggir ekki að hinn tvöfaldi lás jafnist út, sama hvað segir í greinargerð. Hvaða feluleikur er þetta, er þetta ekki merki um samstöðuleysi í ríkisstjórn? Ætlar forsætisráðherra að staldra við og taka þetta aftur til ábyrgðarvinnu með öllum helstu sérfræðingum við borðið eða ætlar forsætisráðherra, þrátt fyrir öll þessi varnaðarorð, að halda áfram að styðja frumvarpið óbreytt?“ Fréttir að flokkar standi við kosningaloforð? Kristrún svaraði þessu að hætti hússins, hún hvatti fólk til að lesa greinargerðina og sagði það hafa legið fyrir þegar Samfylkingin að þau legðu áherslu á þetta mál, þau hafi sagt það í stefnuyfirlýsingu og í kosningabaráttu. Hún taldi það einkennilegt að það þættu sérstakar fréttir að stjórnmálaflokkur stæði við stefnumál sín og að bætur fylgdu launum. Kristrún stóð föst fyrir, sagði það engar fréttir að flokkar stæðu við stefnumál sin, eða teldi Guðrún svo vera?vísir/anton brink Hún sagðist hafa orðið þess vör að gagnrýnin sem sýnt hefur sig í tengslum við þetta mál byggði á misskilningi. „Það er ekki um tvöfaldan lás að ræða.“ Kristrún sagði það ekki á valdi ríkisstjórnarinnar að ákveða hvaða umsögnum væri kallað eftir. Öllum er frjálst að senda inn umsögn. „Við lofuðum þessu fyrir kosningar og þetta er reyndar mál sem flestir stjórnmálaflokkar hafa lofað fyrir kosningar. Við fögnum því að þetta sé nú loks gerst. Það liggur fyrir.“ Kristrún fagnar málinu Guðrún taldi þetta lýsa nokkrum hroka, að Kristrún hvetti fólk til að lesa greinargerðina? Að hún sé eini hagfræðingur landsins sem hafi rétt fyrir sér, allir aðrir hagfræðingar misskilji. „Hvers vegna er vilji löggjafans ekki gerður skýr í greinargerð? Hvaða feluleikur er þetta?“ Guðrún sagði að þó að Seðlabankinn skrifi ekki lög sé það á hans ábyrgð að halda niðri verðbólgu. Þetta mál hafi augljóslega áhrif á verðbólguvæntingar og þá eigi Seðlabankinn erindi og þá eigi stjórnvöld að hlusta. Kristrún var ákveðnari ef eitthvað var í seinna svari sínu. Hún spurði hvort formaður Sjálfstæðisflokks væri að halda því fram að ríkissjóður færi á hliðina við að styðja við bakið á þeim sem minnst mega sín. „Er það það sem verið er að halda fram hérna?“ Kristrún ítrekaði að það væri ekki tvöfaldur lás á þessu frumvarpi og hnykkti á því sem hún hafði áður sagt: „Ég hef ekki áhyggjur af þessu máli, ég fagna því.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Eldri borgarar Tenging almannatrygginga við launavísitölu Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira