Segir að sænska ríkisstjórnin megi ekki verða eins og Spurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2026 15:47 Mikael Damberg segir ekki vænlegt fyrir sænsku ríkisstjórnina að vera eins og Tottenham. getty/Nils Petter Nilsson Mikael Damberg, fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar, líkir ríkisstjórn landsins við Tottenham. Hún hafi tækifæri en nýti þau ekki, eins og enska liðið.
Sósíaldemókratinn Damberg var fjármálaráðherra Svíþjóðar á árunum 2021-22 en er núna í stjórnarandstöðu. Hann er ekki hrifinn af því hvernig núverandi ríkisstjórn Svíþjóðar hefur haldið á spöðunum í efnahagsmálum og segir það minna á ófarir Spurs. „Tottenham er eitt af virtustu félögum Englands, ríkt félag með risastóran leikvang og á stóran hóp stuðningsmanna; hefur allt til alls til að vera í fremstu röð,“ sagði Damberg. „Þrátt fyrir þetta er Spurs í vandræðum. Þeir eru í botnbaráttu og bara nokkrum stigum frá fallsæti. Þeir hafa allt en hafa klúðrað sínum tækifærum.“ Damberg varar við því að ríkisstjórnin verði „Spursy“; það er að ná ekki árangri vegna tækifæra sem ekki hafa verið nýtt. „Svíþjóð getur ekki verið eins og Tottenham,“ sagði Damberg. Tveir sænskir leikmenn eru á mála hjá Spurs; Lucas Bergvall og Dejan Kulusevski. Sá síðarnefndi hefur ekkert leikið með liðinu í vetur sökum meiðsla. Thomas Frank var látinn fara sem knattspyrnustjóri Tottenham á dögunum og við starfi hans tók Igor Tudor. Hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í frumraun sinni við stjórnvölinn hjá Spurs því liðið mætir toppliði Arsenal í grannaslag á sunnudaginn. Tottenham er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 29 stig, fimm stigum frá fallsæti. Spurs endaði í 17. sæti á síðasta tímabili en vann Evrópudeildina. Leikur Tottenham og Arsenal hefst klukkan 16:30 á sunnudaginn og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Svíþjóð Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira