Berglind Katla með stórleik og Stjörnukonur byrja á sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 20:01 Berglind Katla Hlynsdóttir skoraði 24 stig í sigri Stjörnukvenna í dag. Vísir/Vilhelm Hin fimmtán ára gamla Berglind Katla Hlynsdóttir fór fyrir Stjörnukonum í kvöld þegar þær unnu heimasigur á Hamri/Þór í fyrsta leiknum í neðri hluta Bónusdeildar kvenna í körfubolta.
Stjörnukonur unnu leikinn á endanum með fimm stigum, 84-79, og minnkuðu forskot Keflavíkur á toppnum í tvö stig. Hamar/Þór er nú tólf stigum á eftir Stjörnunni. Berglind Katla skoraði 24 stig í leiknum en var auk þess með fimm fráköst, þrjár stoðsendingar og þrjá stolna bolta. Stina Almqvist var einnig mjög óflug með 23 stig og 12 fráköst og fyrirliðinn Eva Wium Elíasdóttir bætti við átján stigum og sex stoðsendingum. Ruth Helena Sherrill skoraði 10 stig og tók 14 fráköst og Diljá Ögn Lárusdóttir var með sjö stig. Jadakiss Nashi Guinn skoraði 26 stig fyrir Hamar/Þór og Jovana Markovic var með 17 stig og 10 fráköst. Ana Clara Paz skoraði 13 stig og Mariana Duran var með 10 stig og 7 stoðsendingar. Bergdís Anna Magnúsdóttir var atkvæðamest íslensku stelpnanna með átta stig. Hamar/Þór vann KR sannfærandi í leiknum á undan sem var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Hallgríms Brynjólfssonar. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi nær allan tímann en það var jafnt í hálfleik, 42-42. Hamars/Þórs konur byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel og komust mest átta stigum yfir en Garðabæjarliðið náði að snúa því við og komast einu stigi yfir, 66-65, fyrir lokaleikhlutann. Stjarnan var skrefinu á undan nær allan leikhlutann en gestirnir af Suðurlandinu gáfust aldrei upp. Liðið setti niður stór skot á lokakaflanum en tókst ekki að brúa bilið þar sem meðal annars Berglind Katla nýtti vítin sín vel í lokin.
Bónus-deild kvenna Stjarnan Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn