Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2026 10:34 Vestræn ríki hafa beitt Rússa alls kyns viðskiptaþvingunum frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu fyrir fjórum árum og þar áður fyrir innlimun Krímskaga. Pútín forseti hefur komist í kringum sumar þeirra með skuggaflota sínum en rússnesk fyrirtæki hafa einnig nýtt sér aflandsfélög til þess að stunda viðskipti sín. EPA/Alexei Druzhinin Fyrirtæki í Rússlandi hafa notað bresk aflandssvæði til þess að komast í kringum þvingunaraðgerðir. Alþjóðleg samtök gegn spillingu telja að viðskipti fyrir allt að átta milljarða dollara hafi farið þessa leið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu.
Á annað hundrað lúxussnekkja bandamanna Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, tugir flugvéla og búnaður fyrir rússneska olíuiðnaðinn er sagður hafa farið í gegnum bresk yfirráðasvæði samkvæmt úttekt Rússlandsdeildar Transparency International, alþjóðlegra félagasamtaka sem beita sér gegn spillingu. Flest viðskiptanna eru sögð hafa farið fram fljótlega eftir innrásina árið 2022 en þau hafa haldið áfram allt fram á síðasta ár að minnsta kosti, að því er kemur fram í frétt breska blaðsins The Guardian. Upphæðirnar nema hátt í þúsund milljörðum íslenskra króna. Afgerandi meirihluti viðskiptanna fór í gegnum fjögur bresk yfirráðasvæði: Bresku Jómfrúareyjar, Bermúda, Cayman-eyjar og Gíbraltar. Aflandsfélög voru til að mynda notuð til þess að selja snekkjur frá Tyrklandi til Rússlands. Um helmingur viðskiptanna fór í gegnum Bresku Jómfrúareyjar. Bresk stjórnvöld hafa áður veitt yfirvöldum þar ákúrur fyrir að gera fyrirtækjaskrá ekki opinbera. Fjármálayfirvöld á Cayman-eyjum fullyrða að þau framfylgi viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi af krafti og að tæplega tíu milljarða dollara eignir hafi verið frystar í tengslum við þær. Snekkja Medvedev og kol fyrrverandi Úkraínuforseta Ein snekkjanna sem var seld í gegnum aflandsfélag hefur verið tengd við Dmitri Medvedev, fyrrverandi forseta Rússlands og formann þjóðaröryggisráðs landsins. Medvedev sætir refsiaðgerðum í Bretlandi. Dmitrí Medvedev (t.v.) hélt forsetastólinum heitum fyrir Vladímír Pútín (t.h.) í eitt kjörtímabil þegar sá síðarnefndi mátti ekki bjóða sig fram aftur samkvæmt stjórnarskrá árið 2008. Pútín tók aftur við embættinu árið 2012 og lét síðar breyta stjórnarskránni til að geta setið eins lengi og honum lysti.Getty/Mikhail Svetlov Þá fundu rannsakendur Transparency International vísbendingar um að hagnaður af sölu kola sem voru unnin í hersetnum héruðum Úkraínu hafi verið þvættaður í gegnum aflandsfélög. Þau félög hafa verið sögð tengjast fjölskyldu Viktors Janúkovitsj, fyrrverandi forseta Úkraínu, sem fékk hæli í Rússlandi eftir að hann hrökklaðist frá völdum í skugga fjöldamótmæla árið 2014.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bretland Bermúdaeyjar Gíbraltar Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Himneskt ei meir Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira