Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir skrifar 26. febrúar 2026 11:02 Ein stærsta áskorun leikskólanna í dag er skortur á starfsfólki. Erfitt hefur reynst að fá fólk til starfa, mikið er um veikindi og starfsmannavelta er há. Þetta hefur leitt til þess að oft þarf að grípa til fáliðunaraðgerða, aukið álag fellur á starfsfólk og vítahringur myndast þar sem óhóflegt álag ýtir enn frekar undir álagstengd veikindi og starfsmannaveltu. Reykjavíkurleiðin svokallaða var samþykkt 17.febrúar síðastliðinn og er aðgerðapakki sem á að létta álagið í leikskólunum. Þetta er nauðsynlegt fyrsta skref en við þurfum að ganga lengra. Til að ná árangri er nauðsynlegt að fara í enn frekari aðgerðir sem skapa betri aðstæður og bæta kjör leikskólastarfsfólks hvort sem það er kennaramenntað eða ófaglært. Ófaglært starfsfólk Staðreyndin er sú að vegna skorts á leikskólakennurum er meirihluti leikskólastarfsfólks ófaglært. Þessi hópur hefur fyllt þær stöður sem ekki hefur tekist að ráða í og haldið starfseminni gangandi. Skortur á faglegri menntun og uppsafnaðri reynslu innan hópsins hefur áhrif á samfellu, faglegt starf og þróun innan leikskólanna. Starfsmannavelta er einnig mun hærri meðal þessa hóps en kennara sem skapar enn frekara vandamál að því leyti að þekking og reynsla safnast enn síður fyrir innan leikskólanna heldur hverfur með hverjum starfsmanni sem hættir. Slíkur óstöðugleiki bitnar ekki síst á börnunum, þar sem rofin tengslamyndun og skortur á samfellu í samskiptum geta haft neikvæð áhrif á öryggi þeirra, líðan og nám. Það er eitt að mikill skortur sé á kennaramenntuðu starfsfólki en það er alvarlegra ef megnið af starfsfólki er nýtt og óreynt. Menntun hefur mikil áhrif á fagmennsku og gæði í starfi, en reynsla er líka mikilvæg. Það þarf því að innleiða markvissar aðgerðir sem auðvelda símenntun og skapa hvata fyrir starfsfólk að vera áfram, sem eru komin til starfa í leikskólum. Lykilforsenda þess að þetta takist er að tryggja starfsfólki nægan undirbúningstíma, svo það hafi svigrúm til faglegs starfs og þróunar samhliða daglegum störfum. Almennt leikskólastarfsfólk fær mjög takmarkaðan undirbúningstíma, ekki allir starfsmenn eiga rétt á honum og oft er þeim tíma fórnað vegna undirmönnunar án þess að bætt sé upp fyrir það síðar. Þetta hefur í för með sér eftirtalda galla: Í fyrsta lagi fá þau ekki tækifæri til að finna sína styrkleika í starfi, fræðast um þroska barna eða aðra þætti starfsins eða skipuleggja verkefni fyrir börnin í samvinnu við fagmenntað starfsfólk. Í öðru lagi verja þau nær öllum starfstíma sínum inni á deildunum í mesta álaginu. Ófaglærða starfsfólkið fær ekki næg tækifæri til að stíga út úr aðstæðum til að ígrunda og vaxa þannig í starfi og ná með því betri tökum á starfi sínu. Þess í stað vinna þau undir stanslausu álagi sem eykur talsvert líkur á kulnun. Þessi munur á milli ófaglærðra og kennaramenntaðra skiptir sköpum þegar kemur að því að skapa heilbrigt og faglegt starf í leikskólunum og sporna gegn of miklu álagi. Gæða leikskólastarf krefst skipulagningar og undirbúnings en samsetning starfsfólks ræður þar mestu um útkomuna. Berum saman tvær sex manna deildir þar sem ein deild hefur tvo menntaða kennara, þar af einn sem sinnir deildarumsjón, og svo deild sem hefur engan starfsmann með kennaramenntun. Í fyrra tilvikinu fær deildarstjórinn að lágmarki 10 klst af undirbúningi á viku og almennur kennari fær 7 klst, sem gera 17 klst á viku fyrir þá deild. Í seinna tilvikinu fær ófaglærði deildarstjórinn 8 klst af undirbúningi og almennt starfsfólk engan, 8 klst fyrir þá deild. Fyrir þetta líða börnin að sjálfsögðu. Á meðan ástandið er óbreytt þarf að tryggja að lágmarks undirbúningur fari fram innan hverrar deildar, burtséð frá því hversu margir kennarar starfa þar. Við viljum að sjálfsögðu fleiri kennara í leikskólana og þeir munu alltaf fá forgang í störfin, en það þýðir ekki að það þurfi að skerða gæðastarf leikskólanna enn frekar. Sköpum eflandi starfsumhverfi Flestir sem hafa starfað í leikskólum munu segja að það sé æðislegt að vinna með börnum en að álagið sé of mikið. Það er gífurlega gefandi að hafa áhrif á líf barna, sjá þau þroskast og fóta sig félagslega. Mun fleiri myndu sækja í að vinna með börnum ef það væri betur launað og starfsaðstæður betri. Álag er mesta meinsemdin í leikskólastarfi samtímans og bitnar á gæðum leikskólastarfs, þroska barna og velferð starfsfólks. Allt starfsfólk á að fá tíma til starfsþróunar og tryggja þarf að nægur tími gefist til að skipuleggja gæðaleikskólastarf - barnanna vegna. Það er eitthvað sem við hljótum öll að vilja: Að fólkið sem vinnur með börnunum okkar fái tíma sem þarf til að eflast í starfi til að geta sinnt því eins vel og mögulegt er. Við þurfum að huga að aðgerðum sem eru forvarnarmiðaðar og koma í veg fyrir að of mikið álag skapist í leikskólunum. Það er eina leiðin til að takast á við starfsmannaveltu, draga úr veikindum og gera leikskólastarfið eftirsóknarverðara og þar með losa leikskólana út úr þessum vítahring. Við getum ekki slökkt elda að eilífu. Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningum og fyrrum ófaglærður leikskólastarfsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistaflokkurinn Silja Sóley Birgisdóttir Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar