Körfubolti

Í lands­liðið því lítill ættingi er á leiðinni

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurður Pétursson er mættur með landsliðinu til Litáens.
Sigurður Pétursson er mættur með landsliðinu til Litáens. Vísir / Diego

Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum í körfubolta fyrir seinni leikinn við Litáen í undankeppni HM.

Íslenski hópurinn ferðaðist til Litáens í gærmorgun eftir sigurinn frækna gegn Litáen í Laugardalshöll á föstudaginn. Leikurinn við heimamenn er á morgun klukkan 16:30 að íslenskum tíma.

Tveir leikmenn hafa helst úr lestinni síðan á föstudaginn því Haukur Helgi Pálsson verður ekki með vegna meiðsla og þá fékk Kári Jónsson leyfi þar sem hann er að verða pabbi á næstu dögum.

Craig Pedersen getur ekki nýtt krafta Hauks Helga Pálssonar, eftir að hann meiddist.vísir/Hulda Margrét

Í þeirra stað koma tveir leikmenn Álftaness, þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson.

Þess má til gamans geta að þeir Sigurður og Kári eru bræðrasynir en feður þeirra eru körfuboltaþjálfararnir Pétur og Jón Arnar Ingvarssynir. Sigurður kemur því inn í landsliðið á sama tíma og hann er um það bil að eignast nýjan og náskyldan ættingja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×