Heyra heilbrigðisyfirvöld? Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar 3. mars 2026 09:31 Hópur barna á Íslandi glímir við heyrnartap sem ekki er greint fyrr en of seint á skólagöngu þeirra. Það getur haft víðtæk áhrif á námsárangur og félagsfærni til framtíðar. Þegar barn og aðstandendur vita ekki að heyrnarskerðing er til staðar, getur hún verið rótin að erfiðleikum í námi, hegðunarvandamálum og skólaforðun. Heilbrigðisyfirvöld geta brugðist við þessari stöðu með einföldum hætti: að byrja aftur heyrnarskimun í grunnskólum. Tækninni hefur fleygt fram þannig að þessi lausn er ódýr, fljótleg og einföld. Börn geta tapað heyrn af algengum orsökum sem margar hverjar eru fyrirbyggjanlegar, sé gripið nógu snemma inn í. Miðeyrnabólga með vökva, langvinnir bólgusjúkdómar í miðeyra og stífluð eyru vegna mergs geta valdið varanlegri heyrnarskerðingu, ef ekkert er að gert. Samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO væri hægt að koma í veg fyrir um 60% af heyrnartapi barna með einföldum forvarnaraðgerðum. Stofnunin hvetur til þess að komið verði á reglulegri skimun á heyrn barna í grunnskólum. Þetta er raunar gert í flestum nágrannalöndum okkar. Á Íslandi hefur heyrn nýbura verið skimuð um árabil, og fram til ársins 2011 var einnig gerð heyrnarskimun í grunnskólum við upphaf skólagöngu. Þá var henni fyrirvaralaust hætt, og samkvæmt upplýsingum frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur fjöldi barna sem er greindur með heyrnarskerðingu fækkað mikið á þessum 15 árum. Þetta þýðir bara eitt, að börn eru að greinast alltof seint og oft eftir að hafa lent í töluverðum vandræðum vegna vandamála sem eiga rót í ógreindri heyrnaskerðingu. Skilaboð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á alþjóðlegum Degi heyrnar þann 3. mars eru skýr: „Í lífi, leik og námi: heyrnarvernd fyrir öll börn!“ Við skorum á heilbrigðisyfirvöld á Íslandi að koma aftur á reglulegri heyrnaskimun allra barna sem hluti af heilsuvernd í grunnskólum. Það er réttur barna að njóta skilvirkrar heilbrigðisþjónustu og heilsuverndar. Heyrnarskimun í skólum fyrir alla er ekki bara réttlætismál, heldur forvarnarverkefni sem auðvelt er að setja upp og kostar samfélagið margfalt minna en vangreining á heyrnarskerðingu barna. Tökum aftur upp heyrnarskimun í skólum. Ég vona að heilbrigðisyfirvöld séu að hlusta. Höfundur er framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tótla I. Sæmundsdóttir Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar