Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar 4. júní 2026 20:31 Í gær skrifuðu Benedikt S. Benediktsson, Jóhannes Þór Skúlason og Sigurður Hannesson grein um fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti á Íslandi fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka iðnaðarins. Í grein sinni fullyrða þeir að ósamræmi í heilbrigðiseftirliti sé of mikið og á þeim grundvelli lýsa þeir yfir stuðningi við umdeilt frumvarp umhverfisráðherra. Allt samfélagið er undir Hér vil ég aðeins staldra við og vekja athygli á því að heilbrigðiseftirlitið fylgist með þúsundum aðila um allt land, allan ársins hring, og hefur gert það samfellt um áratugaskeið. Þessir aðilar eru fjölbreyttir eins og þeir eru margir og starfsemi þeirra tekur reglulegum breytingum bæði í eðli og umfangi. Þar á meðal eru nauðsynlegir aðilar á borð við vatnsveitur og leikskóla og það er í raun er fátt í samfélaginu sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki aðkomu að með einum eða öðrum hætti. Það verður því að segjast að þótt til séu dæmi um ósamræmi þá er fulldramatískt að lýsa því yfir að kerfið í heild sinni sé ónýtt. Að því sögðu þá er ég hjartanlega sammála því að við verðum að vinda ofan af ósamræmi, enda er það engum í hag að reglur séu óskýrar eða að fyrirmæli séu misvísandi. Þetta þarf að laga og má vel gera innan ramma núverandi kerfis. Kerfið í dag Á Íslandi starfa um 70 heilbrigðisfulltrúar á níu heilbrigðiseftirlitssvæðum. Til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi þarf sérstakt leyfi umhverfisráðherra og er m.a. gerð krafa um ákveðna menntun, reynslu af starfinu og réttindanámskeið sem er í umsjá Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar. Heilbrigðiseftirlitssvæðin eru svo í reglulegum samskiptum sín á milli, m.a. á vettvangi hópa sem Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og Landlæknir halda utan um. Frumvarpið eykur ósamræmi Það kemur mér hins vegar engan veginn á óvart að umhverfisráðuneytið hafi lofað Benedikt, Jóhannesi og Sigurði öllu fögru þegar þau hafa kynnt frumvarpið en ég verð því miður að benda á að það mun gera allt annað en að samræma heilbrigðiseftirlit. Eftirfarandi er engan veginn tæmandi listi yfir þau vandamál sem frumvarpið felur í sér en þau ættu engu að síður að sýna hvernig það mun í raun auka á ósamræmi: 1. Umhverfisstofnun og Matvælastofnun eru ekki með samræmt verklag sín á milli. Þetta mun ekki breytast þótt frumvarpið verði að lögum. Og já, stofnanirnar eru hættar við að útbúa sameiginlegt tölvukerfi. 2. Frumvarpið felur í sér að afnema starfsréttindi heilbrigðisfulltrúa og þ.a.l. afnema allar kröfur til menntunar, reynslu og símenntunar. Þetta út af fyrir sig væri gífurleg afturför og í engu samræmi við fögur fyrirheit um aukna samræmingu. Ég get í raun ekki haldið annað en að þau séu vísvitandi að reyna að eyðileggja heilbrigðiseftirlitið. 3. Frumvarpið felur í sér að afmá hugtakið heilbrigðiseftirlit úr löggjöfinni, sem mun skapa misskilning og samskiptavanda í tengslum við eftirlitið. Fólk þekkir heilbrigðiseftirlitið og það er mikilvægt „vörumerki“ í samfélaginu. Eigum við ekki bara að tala betur saman? Jafnvel þótt þetta frumvarp komist í gegnum þingið sjá þeir sem vilja að eftirlitið myndi skerðast verulega og það tæki mörg ár að vinda ofan af þessu skipulagsslysi. Minni þjálfunarkröfur myndu auka á ósamræmi og samskiptavanda. Ríkisstofnanirnar tvær myndu kasta boltum sín á milli og eiga erfiðara með samskipti við sveitarfélögin. Almenningur (og rekstraraðilar) myndu upplifa verulega skert þjónustustig, sérstaklega í tengslum við miðlæga símatíma. Landsbyggðin myndi óhjákvæmilega sitja á hakanum því ríkisstofnanirnar eru með færri starfsstöðvar en sveitarfélögin. Heilbrigðiseftirlit er nefnilega nærþjónusta og jafnvel þótt það komi upp hnökrar í kerfinu þá þurfum við einfaldlega að vinna saman að því að leysa úr þeim. Hættum þessu niðurrifi, sendum ráðuneytið aftur að teikniborðinu og leysum úr þessu saman. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun