Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2026 07:17 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi, við undirritun samningsins. Icelandair og Coca-Cola á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að drykkjarvörumerki Coca-Cola á Íslandi verða aftur seld um borð í vélum félagsins.
Í tilkynningu segir að frá og með morgundeginum verði Coca-Cola, Coca-Cola Zero Sugar, Fanta Zero, Sprite Zero og Icelandic Glacial kolsýrt vatn í boði í öllum áætlunarflugum Icelandair. Fram kemur að um sé að ræða tímamótasamstarf en vörur Coca-Cola voru síðast í boði um borð hjá Icelandair árið 2008. Formleg undirritun fór fram í höfuðstöðvum Icelandair, en drykkir Ölgerðarinnar hafa verið í boði um borð í vélum Icelandair síðustu ár. Haft er eftir Önnu Regínu Björnsdóttur, forstjóra Coca-Cola á Íslandi, að félagið sé afar stolt að hefja þetta samstarf við Icelandair og að vörumerki Coca-Cola verði aftur í boði um borð. „Icelandair er eitt sterkasta og virtasta vörumerki landsins og það er okkur heiður að fá að vera hluti af þeirri upplifun sem félagið skapar fyrir farþega sína á hverjum degi.“ Þá er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að Icelandair hlakki til samstarfsins um gosdrykki um borð í flugvélum félagsins. „Samstarfið er niðurstaða útboðs og verða gosdrykkir frá Coca-Cola fáanlegir um borð hjá okkur nú strax í byrjun mars.“
Icelandair Fréttir af flugi Neytendur Mest lesið Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira