Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool 3. mars 2026 22:11 André fagnar sigurmarki kvöldsins fyrir Wolves gegn ríkjandi Englandsmeisturum Liverpool Vísir/Getty Dramatíkin var allsráðandi þegar að botnlið lagði ríkjandi Englandsmeistara Liverpool að velli, 2-1, þar sem að sigurmark leiksins kom í uppbótartíma. Dramatíkin var allsráðandi þegar að botnlið Wolves tók á móti Englandsmeisturum Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokamínútur leiksins voru fjörugar. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Englandsmeistarar Liverpool réðu ferðinni í leik kvöldsins en botnlið Wolves var ekki á því að færa þeim þrjú stig á silfurfati. Það reyndist Liverpool erfitt að koma boltanum í netið í kvöld, Úlfarnir þéttir fyrir. Þegar að sóknarþunginn var hvað mestur hjá Liverpool náðu Úlfarnir að vinna boltann og hlaða í skyndisókn þar sem boltinn endaði hjá Rodrigo Gomes við vítateig gestanna. Gomes tók á rás og lyfti boltanum snyrtilega yfir Alisson í marki Liverpool. Úlfarnir komnir yfir með fyrsta marki leiksins í þeirra fyrsta skoti á markið í leiknum á 78.mínútu. Þó höggið hafi verið þungt við þetta mark rotuðust leikmenn Liverpool ekki við það. Sóknarþungi gestanna hélt áfram og þeir ógnuðu marki Úlfanna oft á skömmum tíma áður en eitthvað varð undan að láta. Þegar komið var fram á 83.mínútu barst boltin til Mohamed Salah sem kom boltanum fram hjá José Sá í marki Wolves og í netinu endaði hann. Staðan orðin 1-1. Fyrsta mark Egyptans í ensku úrvalsdeildinni síðan í byrjun nóvember á síðasta ári. Héldu kannski flestir á þessum tímapunkti í leiknum að leikmenn Liverpool myndu hamra járnið á meðan það var heitt en þegar komið var fram í uppbótartíma venjulegs leiktíma komust Úlfarnir aftur yfir í leiknum með marki frá André og það ætlaði allt um koll að keyra á Molineux. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. Liverpool tapaði gegn botnliði ensku úrvalsdeildarinnar og varð þar með af mikilvægum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti í deildinni. Liðið er í 5.sæti með 48 stig en liðin í kringum Liverpool eiga lek til góða. Wolves er áfram á botni ensku úrvalsdeildarinnar með sextán stig, ellefu stigum frá öruggu sæti. Stuðningsmenn liðsins trúa jafnvel enn á kraftaverk. Wolves og Liverpool mætast aftur á Molineux, heimavelli Wolves á föstudaginn kemur í 16-liða úrslitum enska bikarsins.
Enski boltinn Wolverhampton Wanderers Liverpool FC Mest lesið Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum Fótbolti Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Formúla 1 Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Fleiri fréttir Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Arsenal vann hornspyrnukonsert Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Harmar baulið á leikmenn sem fengu að brjóta föstu Sjáðu mörkin: Samherji Hákonar algjör klaufi og mikið drama í lokin Sjáðu Semenyo setja pressu á Arsenal og markasúpu Liverpool Semenyo hetjan og stutt í Arsenal Samherji skoraði tvö hjá Hákoni í hádramatískum slag Aldrei spurning á Anfield Evanilson kom í veg fyrir sætaskipti Hákon Rafn fær langþráð tækifæri í dag Segir stjörnuleikmanni sínum að hætta að hugsa um Arsenal Liverpool borgar hæstu launin í ensku úrvalsdeildinni Sjá meira