Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 10:32 Almar Atlason spilaði í nítján mínútur í leiknum í nótt en náði ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu sinni í leiknum á undan. Getty/Frank Jansky Almar Orri Atlason og félagar hans í Miami-háskólaliðinu héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt.
Miami vann þá 74-72 sigur á Toledo í enn einum spennuleiknum hjá liðinu að undanförnu. Miami er því áfram eina ósigraða liðið í efstu deild karla í bandaríska háskólakörfuboltanum. Þeir eru líka aðeins fjórða liðið á síðustu 35 árum til að byrja tímabilið 30-0, ásamt liðum Wichita State 2013-14, Kentucky 2014-15 og Gonzaga 2020-21. Með sigrinum tryggði Miami sér auk þess sinn fyrsta MAC-deildarmeistaratitil síðan tímabilið 2004-05, framlengdi bestu byrjun í sögu skólans og bætti við skólamet sitt í fjölda sigra á einu tímabili. Miami státar einnig af bestu byrjun og lengstu sigurgöngu í sögu MAC-deildarinnar. Miami-strákarnir voru að koma úr 69-67 sigri á Western Kentucky á föstudagskvöld, þar sem þeir þurftu á flautukörfu frá nýliðanum Trey Perry að halda. Í leiknum á þriðjudag náðu þeir snemma meira en tíu stiga forystu gegn Rockets og voru aldrei undir í leiknum. Toledo minnkaði aftur á móti muninn í eitt stig fjórum sinnum undir lokin og það leit út fyrir að þeir myndu ná forystunni en Miami hélt út. Þetta var sjöundi leikur liðsins sem réðst með þremur stigum eða minna og þeir hafa því náð að vinna fjölda svona jafnra leikja í vetur. Almar Orri átti alls ekki sinn besta leik, hitti aðeins úr einu skoti af fjórum og var með fleiri tapaða bolta (4) en stig (2). Hann var líka með eitt frákast, eina stoðsendingu og einn stolinn bolta.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Afmælisdagurinn sem aldrei kom Sport Fleiri fréttir Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Sjá meira