Neytendur

Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó

Lovísa Arnardóttir skrifar
Notendur Android-síma eiga í hættu að vera rukkaðir fyrir fargjald þó svo að þeir séu með Klapp-kort. Mikilvægt er að loka fyrir veskið í símanum svo það gerist ekki.
Notendur Android-síma eiga í hættu að vera rukkaðir fyrir fargjald þó svo að þeir séu með Klapp-kort. Mikilvægt er að loka fyrir veskið í símanum svo það gerist ekki. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar.

Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu er málið til meðferðar hjá þeim. Neytendastofa leysir þó ekki úr einkaréttarlegum ágreiningi varðandi endurgreiðslu og er því málið aðeins til skoðunar hjá stofnuninni með tilliti til þess hvort brotið hafi verið gegn góðum viðskiptaháttum og, ef svo er, hvort tilefni sé til aðgerða af hálfu Neytendastofu.

Strætó setti tilkynningu um ofrukkunina á Facebook-síðu sína í síðasta mánuði og svo á heimasíðu sína í dag. Þar er vakin athygli á því að sumir Android-notendur hafi lent í því að veskið í símanum taki yfir QR-kóðann í appinu þegar síminn er borinn að skannanum og greiða þannig fyrir stakan miða með snertilausri greiðslu.

Jóhannes Svavar segir í samtali við fréttastofu að unnið sé að lausn en það sé enn ekki búið að loka fyrir þetta. Tilraun hafi verið gerð til að loka fyrir þetta þann 13. febrúar en það hafi ekki tekist. Hann segir að Strætó hafi borist tugir kvartana vegna málsins og að við þeim hafi verið brugðist með endurgreiðslu. Á vef Strætó má finna leiðbeiningar um hvernig sé hægt að komast hjá þessu.

Eigi í erfiðleikum með endurgreiðslu

„Við höfum endurgreitt öllum sem hafa lent í þessu og settum tilkynningu svo aðrir væru meðvitaðir um þetta og að þau eigi rétt á endurgreiðslu,“ segir Jóhannes Svavar.

Notendur hafa verið í sambandi við fréttastofu og hafa þó greint frá því að erfitt hafi verið að fá Strætó til að viðurkenna vandann og endurgreiða. Við tilkynningu Strætó á Facebook má einnig sjá nokkurn fjölda lýsa því að hafa lent í þessum vanda.

Jóhannes Svavar segir forritara reyna að loka fyrir þetta en það hafi ekki enn tekist. Hann segir þetta eiga við um Android-síma og það virðist tilviljun hjá hverjum.

„Í Android er veskið alltaf opið nema þú lokir því,“ segir hann og að það sé annað á iPhone þar sem þarf að ýta tvisvar á takka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×