Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Eiður Þór Árnason og Telma Tómasson skrifa 5. mars 2026 00:03 Kjartan Orri Þórsson er sérfræðingur í málefnum Írans. Sýn Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir stöðuna óljósa í Íran en Bandaríkjamenn grönduðu á miðvikudag freigátu þeirra á hafi úti og segjast ætla enn dýpra inn í landið. Í raun geti stjórnvöld lýst yfir sigri hvenær sem er.
Kjartan segir það rétt hjá stjórnvöldum í Bandaríkjunum að þau séu í mun betri hernaðarlegri stöðu en Íranir „en aftur á móti ber kannski að taka orðum frá stjórnvöldum í Washington með ákveðnum fyrirvara og við vitum að þetta er frekar óvinsæl árás meðal Bandaríkjamanna. Þannig að það er nú spurning hvort það beri ekki að hlusta á þessi orð í því ljósi að það sé verið að blása Bandaríkjamönnum ákveðna von í brjóst.“ Margt sé enn óljóst með framhaldið og ekki hafi verið gert út af við íranska herinn. Þá ríki spurningar um það hvert eiginlegt markmið Bandaríkjamanna sé með hernaðaraðgerðunum í Íran. „Við munum hvert markmiðið var hérna í sumar þegar það voru gerðar árásir á Íran líka, þar sem átti að taka út kjarnorkuáætlunina og allt svoleiðis. Það tókst víst þá, en samt er það aftur orðið takmarkið núna,“ sagði Kjartan í kvöldfréttum Sýnar. Hægt að hrósa sigri hvenær sem er Mögulega þurfi að bíða eftir því að sigri verði lýst yfir í færslu á samfélagsmiðlum. „Það sem við höfum séð, öll þessi óljósu markmið og oft hafa bandarískir ráðamenn til dæmis talað hver á móti hverjum öðrum í raun um þessi markmið. Þannig að það er nú hægt að lýsa því bara yfir að þeim hafi verið náð í raun hvenær sem er. Afleiðingarnar fyrir íranskt samfélag hins vegar verða gríðarlegar eftir að þetta er búið að eiga sér stað og svo sem ekki gott að segja hvernig þetta allt saman þróast og hvernig stjórnarfarið í Íran á eftir að koma út úr þessu öllu saman.“ Persaflóaríkin í þröngri stöðu Kjartan segir ekki útilokað að nágrannaríki Írans dragist inn í átökin. Það virðist hafa verið markmið Írana að skjóta á sem flestar bandarískar herstöðvar á svæðinu. „Það hafa nú verið einhver samskipti þarna á milli íranskra ráðamanna og ráðamanna í Persaflóanum þar sem þau hafa fordæmt þetta og Íranar hafa sagst vera nauðbeygðir til að gera þetta svona. Persaflóaríkin eru í mjög þröngri stöðu í raun. Hvort þeir vilji láta blanda sér í þetta, það kannski fer eftir því hvernig þetta þróast og hvenær Bandaríkin ákveða að segja þetta gott, hvort þeir dragist þarna inn í. En náttúrulega á einhverjum tímapunkti ef þetta heldur svona áfram þá má leiða líkur að því að þeir taki þátt í þessu.“ Íranir vilji ekki að NATO dragist inn í átökin Á miðvikudag var greint frá því að loftvarnarkerfi Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafi verið virkjað þegar flugskeyti frá Íran fór inn í lofthelgi Tyrklands. Þetta hefur vakið upp spurningar um það hvort NATO-ríkin komi til með að dragast inn í átökin. Kjartan telur ólíklegt að svo verði og bendir á að bæði stjórnvöld í Tyrklandi og Bandaríkjunum hafi gert lítið úr atvikinu. „Þannig að við erum ekki enn þá komin þangað að þessi NATO-grein verði virkjuð og að allir fari þarna inn. Það held ég að gætu aldrei verið hagsmunir íranskra stjórnvalda að draga NATO inn í þessa styrjöld og að þeir muni frekar reyna að halda áfram í því kannski að reyna að sýna hver máttur þeirra er án þess kannski að ganga svo langt að NATO þurfi að dragast inn í þetta. En náttúrulega þegar aðstæðurnar eru orðnar svona þá geta mistök gerst og það er kannski helst þar sem við sjáum að einhverjir svona hlutir gætu farið að þróast.“
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira