Einhverfum er víst neitað um þjónustu á grundvelli greininga Grímur Atlason skrifar 5. mars 2026 17:02 Heilbrigðisráðherra var í Kastljósi þann 4. mars sl. þar sem umfjöllunarefnið var geðheilbrigðiskerfið og málefni einhverfra innan þess. Þar sagði ráðherrann m.a.: „En auðvitað tekur langan tíma að byggja upp svona úrræði og það er þessi mikla innviðaskuld, meðal annars í geðheilbrigðismálum og í þessum úrræðum fyrir einhverfa. Þannig við þurfum auðvitað bara að gera betur.” Ég fagna þessari afdráttarlausu viðurkenningu á ráðherra á stöðunni. Það er nefnilega fyrsta skrefið að viðurkenna stöðuna eins og hún er til að geta hafið uppbyggingu á löskuðu kerfi. Staðan er grafalvarleg og hefur verið það lengi. Geðheilbrigðismál hafa um langt árbil verið hálfgerð afgangsstærð í heilbrigðis- og/eða félagslega kerfinu. Það er í raun sama hvar drepið er niður fæti – verkefnum hefur ekki verið sinnt sem skyldi og kerfið og innviðir þess látnir drabbast niður. Kveikur fréttaskýringaþáttur hefur fjallað um stöðu einhverfra innan geðheilbrigðiskerfisins að undanförnu og tekið viðtöl við einstaklinga sem hafa ítrekað komið að lokuðum dyrum. Þar var m.a. farið yfir málefni einhverfra innan geðheilsuteymanna og þann skort á þjónustu sem hópurinn þarf að búa við af hendi þessara teyma. Heilbrigðisráðherra var spurður á þingi fyrir skömmu um frávísanir úr geðheilsuteymum á grundvelli einhverfugreininga. Heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir landsins svöruðu fyrir hönd ráðherra og verður að segjast eins og er að þau svör voru í besta falli útúrsnúningar. Svar heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var t.d.: „Engum hefur verið vísað úr þjónustu á grundvelli einhverfugreiningar.” Og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða svaraði þannig: „Engum er vísað frá vegna geðræns vanda eða einhverfu.“ Hvernig það komst inni í svar Vestfirðinga að engum væri vísað frá vegna geðræns vanda er ráðgáta en það er ljóst að þessi svör geðheilsuteymanna eru ekki sannleikanum samkvæm. Það er staðreynd að fjölmörgum hefur verið synjað um þjónustu í þessum teymum vegna þess að þeir eru með einhverfugreiningu. Til Geðhjálpar hafa leitað fjölmargir einstaklingar og aðstandendur sem hafa þá sögu að segja að geðheilsuteymin hafi vísað þeim frá vegna einhverfugreiningar. Aðrir einstaklingar hafa ekki fengið þjónustu á geðdeildum og það líka vegna einhverfugreiningar. Þessir sömu einstaklingar fá síðan ekki þjónustu hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins af því að vandi þeirra sé af geðrænum toga. Þetta er raunveruleikinn eða öllu heldur ómöguleikinn sem allt of mörg búa við í þessu landi. Þessi raunveruleiki er því miður eins fjarri þessu svari heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eins og hugsast getur: „Engum hefur verið vísað úr þjónustu á grundvelli einhverfugreiningar.“ Ég skora á heilbrigðisráðherra að fylgja eftir greiningu sinni á ástandinu og setja geðheilbrigðismál algjörlega í 1. sæti við ríkisstjórnarborðið. Íslendingar gætu byrjað á að gera það sama og nágrannar okkar í Danmörku gerðu með því að gera þjóðarsátt um geðheilbrigðismál sl. vor. Þar samþykkti þingið að fjármagn til geðheilbrigðismála yrði aukið um 35% á næstu fjórum árum. Danir setja nú þegar 50% per mann í málaflokkinn en við gerum á Íslandi. Í þessari þjóðarsátt voru sérstaklega tekin fyrir málefni barna og ungmenna og einstaklinga með taugaþroskaraskanir. Byggðar verða þekkingar- og greiningamiðstöðvar út um allt land í Danmörku sem ætlaðar eru einstaklingum með einhverfu og ADHD greiningar eða eru á biðlista eftir greiningu. Heilbrigðisráðherra sagði í Kastljósinu að hún væri að skoða að setja laggirnar slíka miðstöð hér á landi. Það eru góðar fréttir og vonandi tekst ráðherra að afla málinu fylgis innan ríkisstjórnarinnar. Því þetta er nákvæmlega það sem við eigum að gera. Til þetta megi takast verður málaflokkurinn að vera álitin jafn mikilvægur og hann svo sannarlega er. Höfundur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grímur Atlason Geðheilbrigði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Einhverfa Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar