Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Eiður Þór Árnason og Birgir Olgeirsson skrifa 5. mars 2026 18:40 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Vísir/Kristófer Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu (ESB) á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt og dagsetning atkvæðagreiðslunnar.
Í kjölfarið verða þingflokkar ríkisstjórnarinnar kallaðir saman. Miðillinn Politico hafði eftir heimildarmönnum sínum í febrúar að atkvæðagreiðslan gæti farið fram í ágúst. Þá sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi í Póllandi í síðustu viku að hún yrði á næstu mánuðum. Tryggja þurfi stöðu Íslands Leggja þarf þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu fram á Alþingi en lögum samkvæmt getur atkvæðagreiðslan í fyrsta lagi farið fram þremur mánuðum eftir að þingið samþykkir tillöguna. Utanríkisráðherra sagði við fréttastofu fyrr í vikunni að tryggja þurfi stöðu Íslands í aðildarviðræðum, þar á meðal efnahagslegar varnir og yfirráð yfir fiskveiðiauðlindum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins segir að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu eigi að fara fram eigi síðar en árið 2027. „Við erum ekki búin að velja daginn en á næstu mánuðum munum við halda þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Kristrún forsætisráðherra á blaðamannafundi með forsætisráðherra Póllands þann 25. febrúar. „Við munum hlusta á það sem Íslendingar vilja gera en það er gott að heyra að löndin í Evrópu haldi áfram að vera einstök lönd þrátt fyrir að þau gangi í Evrópusambandið.“ Ísland sé enn umsóknarríki Deilt hefur verið um hvort umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, sem var lögð fram af ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna árið 2009, sé enn í gildi. Þorgerður Katrín segir fullljóst að svo sé raunin og tekur þar undir með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sendi bréf til Evrópusambandsins árið 2015 þar sem tilkynnt var að ekki ætti lengur að líta á Ísland sem umsóknarríki. Þorgerður Katrín sagði á þriðjudag að sér þætti vænt um að heyra að fólk vilji setja fram samningsmarkmið. „Af því í hina röndina þá eru þeir sem eru mest mótfallnir að segja að það sé ekki um neitt að semja. Auðvitað er um margt að semja, samningsmarkmið Íslands eru skýr að mínu mati, að við þurfum að verja stöðu Íslands í þessum gjörbreytta heimi. Við þurfum að tryggja efnahagslegar varnir Íslands líka í tengslum við þetta og við þurfum að sjálfsögðu að hafa yfirráð yfir okkar fiskveiðiauðlindum, það er algjört prinsippatriði.“ Flokkur fólksins ekki viljað ganga inn í ESB Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, hefur sagt að það sé ekki í stefnu flokksins að Ísland eigi að ganga inn í ESB. Þrátt fyrir það muni þjóðin fá að kjósa um áframhald viðræðna. „Ég er alveg skýr að það skiptir öllu máli að við séum í góðu sambandi við Evrópu og okkar næstu nágranna. ESB skiptir okkur miklu máli, sérstaklega samningurinn við [Evrópska efnahagssvæðið] sem er hliðið okkar inn á innri markaðinn og Evrópu,“ sagði Inga í ræðustól þingsins í september 2025. „Það skal líka sagt að hér hefur hagvöxtur verið hvað mestur og stöðugri og meiri en í löndunum í kringum okkur og í löndum ESB þannig við eigum svo sannarlega ekkert um sárt að binda með því að vera við sjálf. Hins vegar er spurningin um gjaldmiðilinn okkar og þá finnst mér spennandi að tjá það að við erum að skoða kosti og galla krónunnar,“ bætti hún við. Vísaði þar Inga til þess að ríkisstjórnin hafi falið erlendum sérfræðingum að vinna skýrslu um kosti og galla íslensku krónunnar og valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Viðreisn Tengdar fréttir Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. 3. mars 2026 16:20 Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. 25. febrúar 2026 18:11 Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. 3. mars 2026 16:20 Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Mögulegt er sagt að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild að Evrópusambandinu gæti verið haldin strax í ágúst á þessu ári. Á sama tíma er vaxandi stuðningur sagður við stækkun Evrópusambandsins í ljósi væringa á alþjóðasviðinu. 23. febrúar 2026 08:24 Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Fleiri fréttir Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Umferðarslys austan við Vík Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Sjá meira
Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. 3. mars 2026 16:20
Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. 25. febrúar 2026 18:11
Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. 3. mars 2026 16:20
Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Mögulegt er sagt að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild að Evrópusambandinu gæti verið haldin strax í ágúst á þessu ári. Á sama tíma er vaxandi stuðningur sagður við stækkun Evrópusambandsins í ljósi væringa á alþjóðasviðinu. 23. febrúar 2026 08:24