Truflanir víða vegna eldingaveðurs Árni Sæberg og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 6. mars 2026 16:46 Líklegast er að truflanir hafi áhrif í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Vilhelm Truflanir á rafmagni og hitaveitu eru víða á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingaveðurs. Þá var lágur þrýstingur síðdegis á heita vatninu í Hveragerði og Þorlákshöfn og fleiri stöðum vegna rafmagnstruflana. Þá hefur sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í Mosfellsbæ og Garðabæ verið lokað vegna veðurs. Í tilkynningu á vef Veitna segir að eldingar hafi orsakað rafmagnstruflanir á höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi. Það hafi bein áhrif á dreifingu á heitu vatni á sama svæði. „Við erum að vinna í málinu og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.“ Eftirfarandi myndband náði Egill Aðalsteinsson af eldingarveðri í Hveragerði nú síðdegis. Hafi helst áhrif í efri byggðum Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir í samtali við Vísi að rafmagnsleysið hafi helst áhrif á dreifingu heits vatns í efri byggðum, þar sem dælur gangi fyrir rafmagni. Talið sé að truflanir komi helst fram í minni þrýstingi á heita vatninu en komi til algjörs vatnsleysis sé mikilvægt að fólk skrúfi fyrir krana, til þess að forða tjóni þegar þrýstingur kemst aftur á. Ómögulegt sé að segja til um það hversu lengi truflanir muni vara. Það fari alfarið eftir veðri og þá geti tekið einhvern tíma að ná upp þrýstingi á ný eftir að rafmagn kemur á aftur. Sundlaugum lokað fyrr Tilkynnt hefur verið um lokanir fyrr í sundlaugum vegna eldingaveðursins. Meðal annars í Mosfellsbæ, auk þess sem sundlaugagestum í Árbæ og Úlfarsárdal var gert að yfirgefa laugarnar fyrr en ella vegna veðursins. Þá kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ á samfélagsmiðlum að sundlaugum bæjarins hafi verið lokað fyrr vegna veðursins. Það eru Ásgarðslaug og Álftaneslaug. Frétt uppfærð 17:56: Í tilkynningu frá Veitum segir: „Eðlilegur þrýstingur ætti að vera kominn á heita vatnið alls staðar nema á Kjalarnesi. Það tekur nokkra stund til viðbótar.“ Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér. Veður Orkumál Vatn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Í tilkynningu á vef Veitna segir að eldingar hafi orsakað rafmagnstruflanir á höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi. Það hafi bein áhrif á dreifingu á heitu vatni á sama svæði. „Við erum að vinna í málinu og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.“ Eftirfarandi myndband náði Egill Aðalsteinsson af eldingarveðri í Hveragerði nú síðdegis. Hafi helst áhrif í efri byggðum Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir í samtali við Vísi að rafmagnsleysið hafi helst áhrif á dreifingu heits vatns í efri byggðum, þar sem dælur gangi fyrir rafmagni. Talið sé að truflanir komi helst fram í minni þrýstingi á heita vatninu en komi til algjörs vatnsleysis sé mikilvægt að fólk skrúfi fyrir krana, til þess að forða tjóni þegar þrýstingur kemst aftur á. Ómögulegt sé að segja til um það hversu lengi truflanir muni vara. Það fari alfarið eftir veðri og þá geti tekið einhvern tíma að ná upp þrýstingi á ný eftir að rafmagn kemur á aftur. Sundlaugum lokað fyrr Tilkynnt hefur verið um lokanir fyrr í sundlaugum vegna eldingaveðursins. Meðal annars í Mosfellsbæ, auk þess sem sundlaugagestum í Árbæ og Úlfarsárdal var gert að yfirgefa laugarnar fyrr en ella vegna veðursins. Þá kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ á samfélagsmiðlum að sundlaugum bæjarins hafi verið lokað fyrr vegna veðursins. Það eru Ásgarðslaug og Álftaneslaug. Frétt uppfærð 17:56: Í tilkynningu frá Veitum segir: „Eðlilegur þrýstingur ætti að vera kominn á heita vatnið alls staðar nema á Kjalarnesi. Það tekur nokkra stund til viðbótar.“ Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.
Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.
Veður Orkumál Vatn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira