Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Smári Jökull Jónsson skrifar 9. mars 2026 23:45 Mörg hús í Grindavík verða jöfnuð við jörðu. Vísir/Lýður Valberg Vinna hófst við niðurrif altjónaðra húsa í Grindavík í morgun. Verktakinn segir tilfinningarnar blendnar. Hann ætli að fara áfram á hnefanum líkt og hann hafi gert frá rýmingu bæjarins. Þá opnar matvöruverslun í bænum á næstu dögum en engin slík hefur verið í Grindavík í rúm tvö ár.
Í fyrsta áfanga á að rífa þrjú hús við Mánagötu og Mánagerði en alls er gert ráð fyrir að rífa 35-40 altjónuð hús í Grindavík. Vonast er til að niðurrif húsa verði komið vel á veg þegar líður á sumarið svo hægt verði að halda áfram með sprunguviðgerðir en þær standa meðal annars yfir við íþróttahúsið. Fyrir áramót var gerður rammasamningur við níu verktaka en niðurrif húsanna verður boðið út í nokkrum örútbúðum og er það grindvíska fyrirtækið Jón og Margeir sem sér um að rífa fyrstu húsin. „Þetta er nú svo sem ekki skemmtilegasta verkefnið að vera í en þetta er auðvitað hluti af uppbyggingu Grindavíkur. Það þarf að byrja á að rífa þessi hús og þá getum við gert við sprungurnar sem eru hérna undir,“ sagði Jón Gunnar Margeirsson eigandi Jóns og Margeirs. Jón Gunnar Margeirsson, eigandi Jóns og Margeirs.Vísir/Lýður Valberg „Þetta er alveg erfitt, það er alveg þannig. Þetta er hluti uppbyggingar og við verðum að fara þessa vegferð.“ „Ætlum að byggja þetta upp“ Markmiðið með framkvæmdunum og sprunguviðgerðum er að tryggja yfirborð í bæjarlandinu til að draga úr lokunum og fækka afgirtum svæðum. Á framkvæmdasvæðinu þurfa verktakar að fara að ítrustu öryggiskröfum. „Það er engin handtínsla neitt í gangi heldur er þetta allt vélavinna. Svo bakkar þú vélinni út á öruggt svæði þegar þú yfirgefur vélina.“ Niðurrifið hófst í morgun.Vísir/Lýður Valberg Jón Gunnar áætlar að það taki fimm til sjö daga að rífa hvert hús og viðurkennir að það verði skrýtið að sjá þegar húsin verða farin. „Maður náttúrlega ólst hérna upp og er búinn að labba hérna fram hjá þessu húsi í skólann öll árin í Grindavíkurskóla, þetta verður breytt ásýnd á bænum. En það er sama, ég er búinn að sjá tillögur að því sem á að koma hér í því framhaldi og mér líst hrikalega vel á þær.“ Hann segist bjartsýnn fyrir framtíðinni. „Ég er alltaf bjartsýnn, ég er búinn að vera það frá 10. nóvember 2023. Maður er búinn að fara þetta áfram á hnefanum, ég ætla að halda því áfram. Við við ætlum að byggja þetta upp og gera þetta að þessum blómlega bæ sem við vorum í.“ Matvöruverslun í bænum í fyrsta sinn frá rýmingu Og Grindvíkingar ætla sér svo sannarlega að gera bæin blómlegan á ný. Á dögunum var auglýst eftir skólastjóra með það að markmiði að skólastarf hefjist í haust og þá verður kosið til sveitarstjórnar í vor. Það er þó ekki það eina því engin matvöruverslun hefur verið opin frá því í rýmingunni árið 2023. Það mun breytast á næstu dögum þegar verslunin Víkurval mun opna. Bjarney Högnadóttir og Aljosha maður hennar opna verslunina Víkurval í Grindavík á næstu dögum.Vísir „Við erum búin að fá mjög góð viðbrögð við þessu og allir mjög spenntir. Við erum búin að fá margar heimsóknir á meðan við erum að setja þetta upp og bara jákvætt,“ segir Bjarney Högnadóttir en hún og maður hennar Aljosha reka verslunina saman og einnig söluturninn Skeifuna. Hún segir eftirspurnina eftir matvöruverslun mikla. Klippa: Byrjað að rífa tjónuð hús í Grindavík Hvað eruð þið að bjóða upp á hérna í versluninni? „Allt og ekkert. Þetta er alveg frá frosnum kjötvörum og þrifvörum og sósu og og olíu og morgunmat, nammi og alls konar,“ segir Bjarney við en vöruúrvalið kom fréttamanni töluvert á óvart og var meira en hann bjóst við. „Það eru margir sem bjuggust við að fá bara nokkrar vörur, bara þetta nauðsynlegasta. Mjólk, brauð, smjör og eitthvað svoleiðis. En við bættum aðeins við,“ segir Bjarney að endingu.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira