Körfubolti

Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stólarnir munu taka vel á því gegn Lettunum annað kvöld.
Stólarnir munu taka vel á því gegn Lettunum annað kvöld.

„Það er mikil spenna fyrir þessum leik og þessir heimaleikir í Evrópukeppninni hafa verið vel sóttir hingað til. Ég held að okkar fjórir best sóttu heimaleikir á tímabilinu hingað til hafi verið okkar heimaleikir í þessari keppni,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls fyrir leiknum annað kvöld gegn Riga Zelli í 16-liða úrslitum ENBL-deildarinnar.

Leikurinn fer fram í Síkinu á Sauðárkróki og hefst 19:15. Þeir sem eiga ekki heimangengt á leikinn geta horft á hann á Tindastóll TV.

„Það verður án efa engin breyting þar á þegar fólk veit hvað það er mikið undir. Það hefur gefið þessu aukið krydd að taka þátt í þessari keppni og fólkið okkar hefur verið spennt fyrir þessu.1

Andstæðingurinn er núna í þriðja sæti í sameiginlegri deild hjá Lettlandi og Eistlandi. En liðið Riga Zelli er staðsett í Riga í Lettlandi.

„Þetta lið er stofnað fyrir nokkrum árum af einhverjum peningakarli. Þetta er því ungt lið en augljóslega margir góðir leikmenn. [Khalil] Shabazz er einn af þeim og augljóslega sá sem Íslendingar þekkja sem fylgjast með körfubolta,“ segir Arnar og bætir við að þeir séu einnig með annan mjög góðan Ameríkana innanborðs. Um er að ræða aðeins einn leik í sextán liða úrslitum sem fer fram annað kvöld í Síkinu. Ekki er um tveggja leikja einvígi að ræða.

„Við verðum bara að vinna þennan leik. Við verðum að skjóta svolítið vel og mun betur en við gerðum á móti Grindavík. Þeir vilja þétta teiginn og því verðum við að búa okkur til góð skot. Svo þurfum við að ná að frákasta vel á móti þeim en þeir eru aðeins stærri en við.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×