Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. mars 2026 23:31 Daníel Ó. Einarsson er formaður bifreiðastjórafélagsins Frama. Vísir/Ívar Fannar Formaður Biðfreiðastjórafélagsins Frama harmar að félagið hafi ekki fengið frekari aðkomu að starfi starfshóps fyrir lagasetningu um leigubíla. Hann fagnar stöðvaskyldunni en segir það hafa verið einungis ein krafa af mörgum.
Frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra var nýlega samþykkt á Alþingi sem gerir leigubílstjórum skylt að vera skráðir hjá leigubílastöð með gilt starfsleyfi. Stöðvunum er skylt að skrá allar ferðir, staðsetningu bílanna, akstursleið og greiðslu farþega. Lögin eru eins konar skref til baka eftir að Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi innviðaráðherra, rýmkaði skilyrði sem þarf að reka leigubíl og afnam reglur um heildarfjölda starfsleyfa. Flokkur fólksins greiddi atkvæði gegn frumvarpinu á þeim tíma. Breytingar Sigurðar Inga voru harðlega gagnrýndar af leigubílstjórum. Daníel Ó. Einarsson, leigubílstjóri og formaður Frama, sagðist hafa kallað ítrekað eftir því að lögin sem sett voru í tíð Sigurðar Inga yrðu endurskoðuð. „Það var starfshópur skipaður af fráfarandi ráðherra. Sigurði Inga, og við áttum enga aðkomu að því og við óskuðum eftir því að það yrðu skoðaðir þeir þættir sem við bentum á, sem eru sem sagt afleiðingar lagabreytinganna í samanburði við hvernig þetta var áður,“ sagði Daníel í Reykjavík síðdegis. „Það er til dæmis starfsnám. Það var tekið úr lögum að menn yrðu að keyra í einhvern tíma áður en þeir gætu farið að reka eigin leigubíl. Að byrja ekki bara á því af blindni og þekkingarleysi að reka leigubíl án þess að hafa neina þekkingu á starfinu,“ segir hann. Tryggi að bílstjórar geti lifað á laununum Daníel sér sérstaklega á eftir takmörkun á fjölda starfsleyfa sem gefin voru út. „Vandinn var hjá stjórnvöldum, ekki hjá bílstjórum, að það vantaði hér leigubíla eða fólk fann að verðlaginu. Það var ekki við bílstjórann að sakast. En þannig var umræðan að við bílstjórar og bílstjórafélögin sætum í vegi fyrir því að hér gætu komið erlendar farveitur sem myndu létta fólki lífið og auðvelda samgöngur og bæta þjónustuna, en það fór öfugt,“ segir hann. Vandinn hafi verið að stjórnvöld hafi ekki verið að fylgja gildandi lögum sem snerust að fjöldatakmörkum. Daníel segir slík takmörk ekki endanlegan fjölda heldur sé breytileg tala eftir framboði og eftirspurn sem tryggi að bílstjórar geti lifað á sinni atvinnu. „Þá var athygli beint að helgardjamminu og það er bara stutt stund sem vantar bíla um helgar. Það eru bara eins og að jafnaði eitt laugardagskvöld í mánuði. Sem sagt, eftir útborgun eða eftir einhverja viðburði eins og Menningarnótt eða útskrift stúdenta, þegar það er svo margt í bænum að það vantar leigubíla á milli fjögur og sex um morguninn.“ Leigubílstjórar kalli eftir að slík takmörk verði lögfest. „Allir sem eru komnir með leyfi og sjá að þeir fá ekki nóg af því að vinna vilja svo sannarlega fjöldatakmörkun. Fjöldatakmörkun er nauðsynleg og verður líklega tekin upp í allri Evrópu núna fljótlega.“
Leigubílar Flokkur fólksins Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira