Við erum í þessu saman Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 16. mars 2026 10:32 Borgarstjórn samþykkti nýlega að fela skrifstofu borgarstjóra að láta vinna sérstaka aðgerðaáætlun gegn einmanaleika og undirbúa endurskoðun á stefnu Reykjavíkurborgar um frístundaþjónustu með það að markmiði að fjölga tækifærum íbúa á öllum aldri til aukinnar samveru. Leiðarljós Reykjavíkurborgar er að bjóða upp á fjölbreytta og heilsueflandi frístundaþjónustu sem hvetur til virkrar þátttöku, sköpunar og betra samfélags fyrir fólk á öllum aldri. Einmanaleiki sést ekki utan á fólki, en hann hefur mælanleg áhrif á heilsu, lífsgæði og samfélag. Á síðustu árum hafa rannsóknir víða um heim sýnt að félagsleg einangrun getur haft jafn skaðleg áhrif á heilsu og margir vel þekktir áhættuþættir. Einmanaleiki er þess vegna ekki einkamál einstaklinga heldur samfélagslegt verkefni sem kallar á markviss viðbrögð. Rannsóknir benda til þess að langvarandi einmanaleiki auki líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, þunglyndi og kvíða, auk þess að tengjast lakari lífsgæðum almennt. Sumir fræðimenn hafa jafnvel bent á að áhrif langvarandi félagslegrar einangrunar á heilsu geti verið sambærileg við að reykja allt að hálfan pakka af síkarettum á dag. Einmanaleiki snertir ekki aðeins eldri borgara, þó hann sé algengur þar. Hann getur einnig haft áhrif á ungt fólk, fólk sem býr eitt, nýja íbúa í borginni, innflytjendur eða einstaklinga sem standa utan hefðbundinna félagslegra neta. Í hraðri borgarþróun, þar sem fólk flytur oftar milli hverfa og tengslanet breytast, getur verið auðvelt að verða ósýnilegur í mannfjöldanum. Þess vegna hafa sífellt fleiri borgir farið að líta á félagsleg tengsl sem mikilvægan hluta af innviðum samfélagsins, rétt eins og samgöngur, skóla og græn svæði. Sveitarfélög geta unnið gegn einmanaleika vegna þess að þau móta nærumhverfi fólks. Það sem við getum gert er að skapa rými fyrir tengsl, virkja samfélagið og greina og styðja við þau sem eru félagslega einangruð. Borgir sem draga úr einmanaleika hanna umhverfi þar sem fólk hittist á sjálfsagðan og eðlilegan máta, t.d. með lifandi hverfiskjörnum með kaffihúsum, bókasöfnum og annari menningarstarfsemi. Með því að tryggja gott aðgengi að almenningsrýmum eins og görðum og torgum og með fjölbreyttum hverfastöðvum þar sem fólk getur tekið þátt í félagsstarfi. Reykjavík hefur nú þegar sterka innviði á þessu sviði, til dæmis í bókasöfnum, sundlaugum og menningarhúsum. En eitt af því sem við gerum líka er að styrkja samfélagslegt frumkvæði t.d. í hverfahátíðum og viðburðum, sjálfboðaliðastarfi, félagasamtökum og verkefnum sem tengja kynslóðir saman, til dæmis samstarf skóla og eldri borgara Slík verkefni hafa hjálpa þeim sem upplifa einmanaleika en styrkja jafnframt félagslegt traust og samkennd í samfélaginu. Sumir íbúar þurfa sértækari stuðning. Þess vegna er mikilvægt að greina félagslega einangrun snemma, til dæmis í gegnum heilbrigðis- og félagsþjónustu til að geta boðið upp á heimsóknarverkefni eða tengiliði fyrir fólk sem býr eitt. Einnig má sjá fyrir sér að nýta stafrænar lausnir til að tengja fólk betur saman í gegnum viðburði og samfélagsverkefni. Mikilvægt er að aðgerðir gegn einmanaleika verði ekki aðeins verkefni á vettvangi félagsþjónustu borgarinnar, heldur sameiginlegt verkefni margra sviða: menningar, íþrótta, skipulags, skóla og lýðheilsu. Það þarf samstarf við félagasamtök, kirkjur, íþróttafélög og grasrótarstarf í hverfum. Þar liggur oft mikil þekking á því hvað skapar þessi raunverulegu tengsl milli fólks sem eru svo mikilvæg. Sterk borg er ekki aðeins mæld í hagvexti eða fjölda bygginga heldur einnig í því hvort fólk upplifi að það tilheyri samfélagi. Aðgerðir gegn einmanaleika snúast því ekki aðeins um að hjálpa einstaklingum heldur um að byggja samfélag þar sem fólk sér hvert annað, hittist og tengist. Borg sem hefur markvissa stefnu í þessum efnum er ekki aðeins heilbrigðari heldur líka mannlegri. Höfundur er borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar