Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar 1. október 2026 13:01 Nýlega las ég grein eftir félagsfræðing sem bendir á að fræðasamfélagið hafi lengi gengið út frá því að við lifum í samfélagi sem afneitar dauðanum. Þá kenningu telur greinarhöfundur hafa lítið fræðilegt gildi. Brýnna sé að horfast í augu við að við búum í samfélagi sem afneitar sorginni. Annar fræðimaður hefur lýst þessu sama með öðrum orðum: sorgin hefur smám saman verið falin og á sér hvergi stað, ekki einu sinni innan fjölskyldunnar. Verkefnið er því að efla sorgarvitund okkar. Sorgin þekkir okkur öll Þetta eru stór orð og hér er verið að gefa í skyn að við sem samfélag gefum ekki erfiðum og sárum hugsunum og tilfinningum rými. Raunin er hins vegar sú að sorg er hluti af mannlegum veruleika og reynslu okkar allra. Nýlegar rannsóknir í Bretlandi sýna að meirihluti barna yngri en 10 ára hefur misst náinn fjölskyldumeðlim, nær allir sem hafa náð 18 ára aldri í Bandaríkjunum hafa reynt andlát vinar eða fjölskyldumeðlims og tæp 3% barna í Ástralíu hafa misst annað foreldri sitt. Þótt við höfum ekki sambærilegar tölur hér á landi, er ekki ástæða til að ætla að íslenskur veruleiki sé annar. Sorgin þekkir okkur öll, og enginn er varinn fyrir áföllum. Fátt getur undirbúið okkur fyrir hana því aðstæður eru alltaf ólíkar og tengslin sömuleiðis - hver missir er því ný sorg, jafnvel þótt við höfum reynt sorgina áður. Hún er líka margvísleg: mikil eða lítil, hávær eða hljóðlát, tengd dauðsfalli eða öðrum missi. Að vera til staðar Það sem ræður mestu um hvernig fólki farnast og vinnur úr erfiðum hugsunum og tilfinningum er hvernig fólki er mætt í sorginni af nánustu aðstandendum og vinum, og hvaða viðmót samfélagið sýnir þeim sem syrgja. Sá stuðningur er sjaldnast áfallahjálp eða viðtöl hjá sérfræðingum. Aðeins lítill hluti þarf á slíkri sérhæfðri aðstoð að halda og mikilvægast er að fólk finni að það er ekki eitt í sorginni. Þau sem fá lítinn stuðning eru líklegri til að glíma við langvarandi sorgarröskun, þunglyndi, kvíða og félagslega einangrun. Rannsóknir sýna að fjölskylda og vinir eru það sem fólk í sorg nefnir oftast sem mikilvægasta stuðninginn. Þau sem standa okkur næst. En það er einnig reynsla margra syrgjenda, að þau sem standa þeim næst vita oft ekki hvað þau eiga að segja eða gera. Það áhrifaríkasta er að vera til staðar. Fyrsta skrefið er að hafa samband, svo að fara í heimsókn - hvert handtak, hvert tár og hvert faðmlag skiptir máli þegar sorgin er annarsvegar. Það eru ekki endilega til nein orð sem létta undir með þeim sem syrgja; þar skipta hluttekning og samkennd mestu. Áskorunin felst í því að standa ekki álengdar, heldur sitja hjá og með þeim sem syrgir. Kristur og sorgin Í guðspjöllunum mætir Jesús fólki sem glímir við margvíslegar tilfinningar tengdar missi og sorg. Sameiginlegt þessum frásögnum er að hann tekur á móti fólki með opnum faðmi, hlustar og grætur með því. Þannig birtist Guð ekki sem hátt upp hafinn, heldur sem sá er þekkir manneskjuna, gleði jafnt sem sorgir - Guð sem stendur við hlið okkar og skilur, og gengur með okkur í gegnum myrkrið. Tölum um sorgina Umræða um sorg er ekki auðveld og verður fljótt full af alvöru og þunga. Það er vegna þess að við erum ekki vön að tala um hana. Við þurfum að tala meira, á opinskáan og uppbyggilegan hátt, um sorgina því aðeins þannig getum við byggt upp samfélag sem gefur sorginni rými. Með samtali og umræðu stuðlum við að skilningi og þekkingu á sorg og sorgarviðbrögðum, og að sorgin birtist með ólíkum hætti hjá fólki þar sem engin ein rétt leið er til að syrgja. Sköpum menningu þar sem missir og sorg eru ekki tabú. Ávinningurinn er aukin færni til að hlusta á syrgjendur, þora að nálgast þau sem syrgja og vita hvernig hægt er að sýna stuðning án þess að reyna að laga sorgina. Hér er mikið í húfi, ekki aðeins fyrir samfélagið og þau sem syrgja, heldur fyrir okkur sjálf, því sorgin gengur ekki fram hjá neinum. En við þurfum ekki að bera hana ein. Þegar við þorum að tala um sorgina og hlusta hvert á annað, verðum við hvert öðru til huggunar. Við þurfum ekki réttu orðin. Það nægir að vera til staðar og hlusta. Höfundur er héraðsprestur Kjalarnessprófastsdæmis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Sorg Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun