Handbolti

Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum

Sindri Sverrisson skrifar
Ísak Steinsson hefur þegar þreytt frumraun sína með A-landsliðinu en getur ekki mætt Svíum í komandi leikjum.
Ísak Steinsson hefur þegar þreytt frumraun sína með A-landsliðinu en getur ekki mætt Svíum í komandi leikjum. vísir/Anton

Markvarðateymi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, í vináttulandsleikjunum við Svía, verður óbreytt frá því á Evrópumótinu í janúar.

Til stóð að Ísak Steinsson, markvörður Drammen í Noregi, yrði þriðji markvörður hópsins með þeim Viktori Gísla Hallgrímssyni og Björgvini Páli Gústavssyni.

Nú hefur Ísak hins vegar neyðst til þess að draga sig úr hópnum vegna meiðsla en þetta tilkynnti HSÍ í dag. 

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari fær því ekki tækifæri til að sjá Ísak aftur með landsliðinu eins og til stóð, en Ísak lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir ári síðan.

Íslenski hópurinn kemur saman til æfinga í dag og er fyrri leikurinn við Svía á Hlíðarenda á fimmtudaginn. Seinni leikurinn er svo í Kaplakrika á laugardaginn.


Tengdar fréttir

„Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“

Snorri Steinn Guðjónsson gerir fáar breytingar á íslenska karlalandsliðinu fyrir vináttulandsleikina gegn Svíþjóð síðar í þessum mánuði. Hann segir tvo af þeim leikmönnum sem koma inn í íslenska hópinn, Ísak Steinsson og Reyni Þór Stefánsson, hafa spilað vel eftir áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×