Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Kristján Már Unnarsson skrifar 17. mars 2026 21:41 Tillaga ráðamanna Fjarðabyggðar að sátt um jarðgöng á Austurlandi. Annarsvegar göng undir Gagnheiði milli Héraðs og Seyðisfjarðar með afleggjara til Mjóafjarðar. Hins vegar göng undir Eskifjarðarheiði. grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.
Í fréttum Sýnar var rifjað upp að innviðaráðherrann ýtti Fjarðarheiðargöngum út af borðinu fyrir jól og setti Fljótagöng til Siglufjarðar í fyrsta sæti. Hann setti jafnframt Fjarðagöng á Austfjörðum og göng milli Súðavíkur og Ísafjarðar saman í 2. til 3. sæti. Tillaga ríkisstjórnarinnar um nýja forgangsröðun jarðganga sem núna er í meðförum Alþingis.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Meginrök ráðherrans fyrir þessari breyttu forgangsröðun sagði hann öryggissjónarmið. Á þau hafa landsmenn verið minntir á síðustu daga. Fyrir helgi og um helgina féllu stór snjóflóð bæði á Siglufjarðarveg og einnig veginn um Súðavíkurhlíð, einmitt á vegarkafla sem þessum jarðgöngum er ætlað að leysa af hólmi. En Austfirðingar virðast ekki vera á því að gefa eftir fyrsta sætið baráttulaust. Á myndbandi sem Samgöngufélagið fékk fyrirtækið Envalys til að gera í tengslum við viðhorfskönnun, sem það stendur fyrir um jarðgöng á Austurlandi, er farið yfir þá jarðgangakosti sem þar hafa einkum verið til skoðunar. Svona gætu jarðgöng úr Seyðisfirði opnast inn í Mjóafjörð, samkvæmt myndbandi Samgöngufélagsins.Envalys Sveitarfélagið Múlaþing hefur ásamt fjölda annarra aðila sent inn umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þar sem þess er krafist að Fjarðarheiðargöng verði aftur sett í fyrsta sæti. Fjarðabyggð sendi einnig inn umsögn þar sem sveitarfélagið áréttar að það styðji Fjarðagöng heilshugar, göngin sem lægju milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar um Mjóafjörð og voru sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng í samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Norðfjarðargöng eru síðustu jarðgöng sem grafin voru á Austurlandi. Þau voru opnuð árið 2017.Jóhann K. Jóhannsson En það vekur einnig athygli að Fjarðabyggð setur fram tillögu um sáttaleið í sinni umsögn, göng sem lægju undir Gagnheiði til Seyðisfjarðar en með gatnamótum og legg til Mjóafjarðar. Jafnframt yrðu gerð önnur göng undir Eskifjarðarheiði sem gætu í vetrarófærð leyst veginn um Fagradal af hólmi en myndu jafnframt tengja helstu byggðir Mið-Austurlands. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi leggur höfuðáherslu á að samgönguáætlun klárist á þessu þingi. Hugsanlegt er að hún verði samþykkt fyrir þinghlé, sem verður í maí vegna sveitarstjórnarkosninga. Annars mun hún væntanlega klárast í byrjun júnímánaðar. Hér má sjá frétt Sýnar:
Jarðgöng á Íslandi Samgönguáætlun Vegagerð Fjallabyggð Skagafjörður Súðavíkurhreppur Ísafjarðarbær Múlaþing Fjarðabyggð Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Samgöngur Byggðamál Tengdar fréttir „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. 14. mars 2026 12:53 Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. 14. mars 2026 11:01 Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Einn helsti forystumaður Austfirðinga um áratugaskeið, Sveinn Jónsson, verkfræðingur á Egilsstöðum, hvetur Austfirðinga til að fylkja liði um Fjarðagöng en um leið að sameinast í baráttu um að jarðgöngum milli fjarðanna og Héraðs verði flýtt. Jafnframt hvetur hann til þess að keyptur verði risabor til landsins til að heilbora öll göngin í einu samfelldu verki, en slíkir borar voru notaðir með góðum árangri við Kárahnjúka til að bora virkjanagöng fyrir tveimur áratugum. 7. desember 2025 07:11 Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. 14. mars 2026 12:53
Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. 14. mars 2026 11:01
Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Einn helsti forystumaður Austfirðinga um áratugaskeið, Sveinn Jónsson, verkfræðingur á Egilsstöðum, hvetur Austfirðinga til að fylkja liði um Fjarðagöng en um leið að sameinast í baráttu um að jarðgöngum milli fjarðanna og Héraðs verði flýtt. Jafnframt hvetur hann til þess að keyptur verði risabor til landsins til að heilbora öll göngin í einu samfelldu verki, en slíkir borar voru notaðir með góðum árangri við Kárahnjúka til að bora virkjanagöng fyrir tveimur áratugum. 7. desember 2025 07:11
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10