Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2026 11:28 Nigel Farage virðist hafa varið drykklöngum tíma í að taka upp myndbönd gegn greiðslu síðustu fimm árin, þar á meðal eftir að hann var kjörinn á þing árið 2024. Vísir/EPA Nýnasistasamtök og öfgahægrióeirðaseggur voru á meðal þeirra sem Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokks Bretlands, var tilbúinn að hvetja til dáða gegn greiðslu. Þetta sýnir greining bresks blaðs á þúsundum slíkra myndbanda sem Farage hefur selt undanfarin ár.
Nigel Farage hefur verið virkur á vefsíðunni Cameo frá árinu 2021. Síðan er vettvangur þar sem notendur geta greitt þekktu fólki til þess að taka upp stutt persónuleg myndbönd fyrir sig. Fyrir myndböndin hefur hann þegið að minnsta kosti rúmar 62 milljónir íslenskra króna. Greining breska blaðsins The Guardian á hátt í 4.400 slíkum Cameo-myndböndum leiðir í ljós að hann var tilbúinn að tala jákvætt um viðburð á vegum kanadískra nýnasista, hvetja breskan öfgamann sem var sakfelldur fyrir óeirðir til dáða og vísa til samsæriskenninga sem beinast að gyðingum fyrir jafnvirði nokkurra tuga þúsunda króna. Umbótaflokkur Farage hefur mælst stærstur í skoðanakönnunum í Bretlandi um margra mánaða skeið. Talsmaður flokksins segir að Farage hafi tekið upp þúsundir myndbanda fyrir einlæga stuðningsmenn og mistök geti átt sér stað í slíkum fjölda. Ekki ætti að líta á Cameo-myndböndin sem pólitískar yfirlýsingar. Farage sé alfarið á móti öfgahyggju og pólitísku ofbeldi. Viðburður nýnasista „það besta sem hefur gerst“ Annað af dæmunum um vafasömustu myndböndin sem Farage seldi voru skilaboð sem hann sendi aðstandendum sýningarinnar „Road Rage Terror Tour“ í Kanada tíu dögum eftir að hann var kjörinn á þing árið 2024. Það eru samtökin Diagolon sem bandaríska utanríkisráðuneytið skilgreindi sem öfgahægrisamtök árið 2022. Justin Trudeu, forsætisráðherra Kanada, hefur lýst þeim sem ofbeldisfullum samtökum hvítra þjóðernissinna. Slagorð Diagolon er „Þau verða að snúa til baka“ sem er vísun til þess að innflytjendur verði þvingaðir úr landi. Forsprakkar samtakanna fengu Farage til þess að hefja skilaboð sín á slagorðinu. Here are excerpts from a video produced by Diagolon, a group of Canadian neo-nazis, who commissioned Farage to endorse their event, the 'Road Rage Terror Tour', days after he was elected as an MP in July 2024, and later used his Cameo clip in their propaganda. Full details in the article.[image or embed]— Henry Dyer (@direthoughts.com) March 17, 2026 at 3:06 PM Markmið öfgamannanna virðist hafa verið að hrekkja borgarstjóra Ontario sem hafði lýst yfir hryllingi á því að sýning sem Diagolon-menn lýstu sem uppistandssýningu ætti að vera haldin í borginni. Þeir sögðu Farage að þeir væru að reyna að sannfæra borgarstjórann um að koma á sýninguna. „Af hverju ekki að láta slag standa? Maður veit aldrei. Kannski kemur þú út og segir „Road Rage Terror Tour er það besta sem hefur nokkru sinni gerst“,“ sagði Farage í myndbandinu til öfgamannanna sem notuðu það síðar í áróðursefni. Farage tók rúmar 23 þúsund íslenskar krónur fyrir viðvikið. Sagði óeirðaseggi að halda áfram að gera rétt Óeirðaseggurinn sem Farage hughreysti hlaut dóm fyrir ofbeldi og óspektir í Bristol í ágúst árið 2024. Þæru voru hluti af óeirðaöldu í kjölfar þess að breskur karlmaður af erlendum uppruna stakk börn til bana í Southport. Fjölskylda mannsins keypti Cameo-skilaboð frá Farage til að fagna því þegar hann losnaði úr fangelsi. Farage sagði í myndbandinu að fangelsisdómurinn hefði verið svívirðilegur og að hann harmaði hvernig hefði farið fyrir honum. „Eina sem ég get sagt er hertu upp hugann, haltu áfram að trúa á réttu hlutina, haltu áfram að hegða þér rétt og á endanum, veistu það, Ben, á endanum sigrar það góða það illa,“ sagði Farage en fjölskylda mannsins bað hann um skilaboð til „Ben“ sem hefði verið dæmdur fyrir að kasta flösku eftir að hann varð sjálfur fyrir skeytum þegar hann reyndi að stöðva áflog óeirðaseggja við lögreglu. The Guardian segir að maðurinn sem Farage studdi hafi kastað flösku að gagnmótmælendum og lögreglumönnum á hestum þegar hann tók þátt í mótmæum við hótel sem hýsti hælisleitendur. Brjóst á bandarískri þingkonu og rafmyntir sem hrundu Í öðrum skilaboðum á Cameo var Farage tilbúinn að endurtaka slagorð breskra öfgahægrimanna gegn innflytjendum og fullyrða að samsæriskenningar um leynileg yfirráð gyðinga í heiminum væru ekki samsæriskenningar. Gegn greiðslu talaði Farage einnig um brjóstin á Alexandriu Ocasio-Cortez, þekktri þingkonu Demókrataflokksins í Bandaríkjunum. Þá notaði Farage Cameo-skilaboð til þess að tala upp svonefndar meme-rafmyntir sem hrundu í verði skömmu síðar. Slíkar rafmyntir virðast vísvitandi brask þar sem virði þeirra er blásið upp með samfélagmiðlaherferðum sem þekktir einstaklingar eru stundum fengnir til þess að taka þátt í. Virði þeirra þurrkast svo út þegar blaðran springur. Guardian segir að Farage hafi tekið allt niður í um tólf þúsund krónur fyrir að taka þátt í að tala upp slíkar rafmyntir. Umfjöllunin um Cameo-skilaboð Farage koma í kjölfar töluverðrar umræðu um framferði þingmannsins þegar hann var ungur maður í skóla. Þar er hann meðal annars sagður hafa beint kynþáttaníði að skólafélögum sínum af erlendum uppruna .
Bretland Samfélagsmiðlar Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira