Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. mars 2026 12:02 Birgir Finnsson starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Slökkviliðsstjóri segist hugsi yfir fréttum af því að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um bættar brunavarnir í aðdraganda bruna á Stuðlum árið 2024 þar sem einn lést. Ljóst sé að eigandi hússins beri ábyrgð á brunavörnum samkvæmt lögum, til greina komi að forgangsraða brunavarnareftirliti með opinberum byggingum. Stjórnendur og starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna segjast í yfirlýsingu harma það atvikið og að þegar hafi verið brugðist ábendingum.
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun birti í gær ítarlega skýrslu um bruna á Stuðlum í október 2024 þar sem sautján ára strákur lést. Samkvæmt skýrslunni er talið að um íkveikju hafi verið að ræða, að kveikt hafi verið í dýnu. Rannsóknin leiddi í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum og að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát. Slökkvilið og byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hafi ítrekað gert kröfur um úrbætur á brunavörnum á árunum fyrir eldsvoðann gagnvart eiganda mannvirkisins, Ríkiseignum í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits sem aldrei hafi brugðist við. Ríkiseignir er sú stofnun sem sér um rekstur fasteigna, jarða og annarra mannvirkja í eigu íslenska ríkisins en Óskar Jósefsson forstjóri baðst undan viðtali vegna málsins þegar eftir því var leitað. Síðar var fréttastofu bent á yfirlýsingu á vef stofnunarinnar. Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir alveg ljóst hvar ábyrgðin liggur. „Það er alltaf eigandi húsnæðis, hann ber ábyrgð á brunavörnunum og ber þá að sjálfsögðu að lagfæra það sem að er bent á. En hluti af því sem þarna er, þrátt fyrir að við gerum athugasemdir, að þá er líka hluti af því sem snýr að brunahönnun hússins, að hönnunin gerði ráð fyrir inngripum starfsmanna við þessar aðstæður. Og það hafði í raun og veru svona líka stóra atriðið. Þannig þannig að þetta er bæði eigandinn og sá sem síðan rekur starfsemina og er með starfsmennina á sinni könnu.“ Hugsi yfir ábyrgðinni sem velt er á starfsfólk Birgir segist hugsi yfir öðrum þætti málsins eftir að hafa lesið skýrsluna. „Og það er hlutur brunavarna sem byggir á því að starfsfólkið grípi rétt inn í þegar að atvik kemur upp. Og við erum svona hugsi yfir þeirri ábyrgð sem þá er sett á starfsmenn við einhverjar aðstæður sem að þeir hafa jafnvel aldrei lent í og mögulega fengið mjög litla þjálfun í.“ Hann segir slökkviliðið stöðugt endurmeta forgangsröðun brunavarnareftirlits. Það geti vel komið til greina að taka byggingar í eigu Ríkiseigna í forgang. „Þetta er bara stöðug forgangsröðun, að reyna að velta upp hvar við þurfum að beita okkur. En að sjálfsögðu kemur svona atvik og sorgleg niðurstaða við okkur og við höfum fyrir töluvert síðan farið meira í að fá gögnin og fara síðan í staðarskoðun og skoða og gulltryggja að það sem við erum að fá staðfestingu á að allt sé í lagi.“ Harma atvikið Í yfirlýsingu frá Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum segjast stjórnendur og starfsfólk stofnunarinnar harma það atvik sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum þann 19. október 2024. „Í skýrslu HMS um eldsvoða á Stuðlum er vandlega farið yfir hlutverk þeirra opinberu aðila sem koma að uppbyggingu og rekstri opinberra bygginga og eftirliti með þeim. Markmið með útgáfu skýrslunnar er að draga lærdóm af því sem gerðist í aðdraganda brunans og í brunanum sjálfum til að koma í veg fyrir að svipaðir atburðir endurtaki sig. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir gegnir hlutverki húseiganda á meðferðarheimilinu Stuðlum og það felur meðal annars í sér að tryggja að öryggiskröfur byggingarinnar séu uppfylltar. Í skýrslunni koma fram atriði sem snúa að ábyrgð húseiganda. Þegar hefur verið brugðist við þeim m.a. með því að breyta verkferlum og skipulagi stofnunarinnar sem á að tryggja að byggingar í umsjón hennar séu öruggar og standist kröfur. Lögð verður áhersla á að vinna með þær úrbótatillögur sem lagðar eru fram í skýrslu HMS. Á meðan rannsókn lögreglu á málinu stendur yfir sér stofnunin sér ekki fært að tjá sig frekar um málið.“
Slökkvilið Málefni Stuðla Slysavarnir Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira