Körfubolti

Varði skot mót­herja með skónum sínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alex Caruso er greinilega tilbúinn að beita öllum brögðum til að stöðva andstæðinga sína.
Alex Caruso er greinilega tilbúinn að beita öllum brögðum til að stöðva andstæðinga sína. Getty/ Christian Petersen

NBA-leikmaðurinn Alex Caruso fór heldur betur óhefðbundna leið til að koma í veg fyrir að andstæðingur skoraði hjá honum í leik Oklahoma City Thunder og Orlando Magic í NBA-deildinni í körfubolta á dögunum.

Caruso hafði misst skóinn sinn og reyndi í framhaldinu að verja skot Tristan Da Silva hjá Orlando Magic með umræddum skó. Það er að sjálfsögðu kolólöglegt og Caruso fékk tæknivillu fyrir

Þótt það hafi verið fyndið að sjá hann verja skotið með skónum og það hafi farið víða á samfélagsmiðlum, fékk leikmaður Magic körfuna gilda og víti að auki.

Eftir á útskýrði Caruso skyndiákvörðun sína um að nota lausa skóinn sem vopn. Hann sagði í viðtali við The Oklahoman að hann hefði bara reynt að vera sniðugur í þessum aðstæðum. Hann vissi þó ekki að þetta yrði ansi dýr tilraun þar sem Orlando skoraði þrjú stig úr sókninni.

„Ég hef aldrei verið í þessari stöðu áður. Ég veit ekki, þetta bara kom til mín. Ég hélt bara að ég myndi verja skotið. Ég veit satt að segja ekki hvað ég hélt að dómurinn yrði. Ég vissi ekki að þetta yrði ólögleg varsla og tæknivilla,“ sagði Caruso.

„Ef ég hefði vitað það hefði ég sennilega ekki gert það því þetta eru þrjú stig. Þetta er sjálfgefin karfa og hann setti boltann ekki einu sinni yfir hringinn,“ sagði Caruso.

„Um leið og ég var kominn með skóinn í höndina hvarflaði að mér að nota hann. Ekki á illgjarnan hátt, heldur meira svona ‚Leyfðu mér að reyna að gera eitthvað til að stöðva boltann.‘ Þetta er bara eitt af þessum undarlegu atvikum í NBA sem gerist sennilega ekki aftur í svona tíu ár,“ sagði Caruso en það má sjá þetta furðulega atvik hér fyrir ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×