Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 12:01 Þórskonur fá ekki að mæta Selfossi og þurfa að sætta sig við 20-0 tap. Facebook/@korfubolti Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, segir að farið hafi verið eftir öllum vinnureglum þegar ákveðið var að fresta ekki leik Selfoss og Þórs frá Akureyri í 1. deild kvenna í körfubolta í gær. Stjórn Þórs harmar viðbrögð sambandsins.
Ólafur Torfason, stjórnarmaður hjá Þór, útskýrði ákvörðun Þórsara um að ferðast ekki suður í leikinn í pistli á Facebook í gær. Hann benti á að öllu flugi hefði verið aflýst vegna veðurs og að þó að heiðarnar væru opnar væri víða óveður á leiðinni suður. „Staðan er því þannig að það er algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna um hvort þær komist á leiðarenda til að spila sinn leik og með óvissu um hvenær þær komist til baka með tilheyrandi kostnaði fyrir félagið,“ skrifaði Ólafur. Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs sendi auk þess frá sér yfirlýsingu í gær og kvaðst „harma þau viðbrögð sem við fengum í þessu máli og það sem við upplifum sem algeran skort á skilningi á alvarleika aðstæðna og ábyrgð gagnvart öryggi leikmanna. Við stöndum engu að síður heilshugar við þá ákvörðun sem tekin var. Þó hún kunni að hafa í för með sér afleiðingar fyrir félagið erum við sannfærð um að hún hafi verið rétt og nauðsynleg miðað við þær aðstæður sem uppi voru.“ Ljóst er að Þór þarf að greiða að lágmarki 300.000 krónur í sekt vegna málsins en endanleg upphæð ræðst á útreiknuðum ferðakostnaði. KKÍ fær 150.000 krónur af sektinni, samkvæmt reglugerð, en félagið sem átti að mæta Þór, Selfoss, fær upphæð sem nemur öllum ferðakostnaði á milli Akureyrar og Selfoss, að lágmarki 150.000 krónur. Þá er Selfossi úrskurðaður 20-0 sigur. Í góðu sambandi við þar til bær yfirvöld Vísir bar málið undir Hannes sem þá var á leiðinni ásamt formanni KKÍ, Kristni Albertssyni, til Hornafjarðar þar sem Sindri og Höttur mætast í kvöld í úrslitaleik um efsta sæti 1. deildar karla. „Það var farið eftir vinnureglum mótanefndar og öllu því sem félögunum hefur verið kynnt. Það voru nokkur hundruð bílar sem keyrðu þarna í gegn í gær,“ sagði Hannes. „Við vitum alveg að þetta er erfitt en aðalmálið er að þessar reglur voru settar að beiðni landsbyggðarliðanna á sínum tíma því það var svo mikið af liðum á höfuðborgarsvæðinu sem vildu bara ekki koma þegar það var eitthvað smá að veðrinu. Við erum í góðu sambandi við vegagerðina og þar til bær yfirvöld þegar við tökum svona ákvarðanir,“ sagði Hannes. Hann bendir á að í dag þurfi til að mynda að fresta leikjum vegna veðurs. „Það eru skýrar reglur um þetta og eftir þeim verður að fara þegar unnið er með mótahaldið. Við þurfum að fresta leikjum í dag og það er samkvæmt leiðbeiningum frá þar til bærum yfirvöldum.“
Körfubolti Þór Akureyri UMF Selfoss Mest lesið Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Viktor tekur við Haukum Körfubolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Sterkasti læknir landsins Sport Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Körfubolti Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Fótbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sjá meira