Neytendur

Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kristján Geir er framkvæmdastjóri Emessís.
Kristján Geir er framkvæmdastjóri Emessís. Samsett

Framkvæmdastjóri Emmessís gefur lítið fyrir fréttir um að enginn rjómi sé í rjómaís þeirra. Umfjöllun um rjómaleysið sé byggð á misskilningi.

„Það virðist vera einhver misskilningur í gangi í þessari grein sem að okkur þótti leitt að hafa séð þarna og virðist hafa breiðst út,“ sagði Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Emessís í Reykjavík síðdegis í gær. 

Fyrr í vikunni var grein birt í Bændablaðinu þar sem greint var frá því að aðalhráefnið í Rjómaís frá Emmessís væri hvítur sykur, vatn og smjör en í Mjúkís hjá Kjörís væru aðalhráefnin hert kokosfita og sykur. Síðar var birt grein þar sem haft er eftir Kristjáni að ísinn sé sannarlega rjómaís.

„Það er rjómi í okkar ís klárlega og svo erum við eitt fárra matvælafyrirtækja á Íslandi með FSCC-vottun. Hún tryggir það meðal annars að allar vörur uppfylli allar matvælareglugerðir á þeim markaði sem við erum að vinna á. Þannig að þetta eru ekki bara við að segja þetta heldur erum við með alþjóðlegar vottanir,“ segir hann.

Tíu prósent mjólkurfita sé í Rjómaísnum sem sé viðmiðið til að hægt sé að kalla ísinn rjómaís. Smjörið, sem sé eitt aðalhráefnanna, er geymsluform á rjóma.

„Þegar að rjómi er ofþeyttur þá breytist það í smjör og þetta er viðurkennd og mjög algeng aðferð við framleiðslu á rjómaís í heiminum,“ segir Kristján.

„Þegar við erum að gera ís sem er hugsaður til að selja í stórmörkuðum, eins og Rjómaísinn er gerður, þá þarf hann að vera með ákveðið geymsluþol. Það þarf að uppfylla kröfur neytenda og við erum stöðugt að skoða hvernig við getum fækkað innihaldsefnum án þess að koma niður á gæðum vörunnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×