Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Jón Þór Stefánsson skrifar 21. mars 2026 13:20 Guðrún gagnrýndi ríkisstjórnina í setningarræðu sinni. Håkon Brode Lund Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina, þá sérstaklega hugmyndina um að ganga í Evrópusambandið, í setningarræðu flokksráðsfundar flokksins í dag. „
Í stað þess að ræða þetta stóra mál af yfirvegun hefur málflutningur ríkisstjórnarinnar farið í undarlegustu áttir. Forsætisráðherra er reyndar í felum og á harðahlaupum undan eigin loforðum um að kljúfa ekki þjóðina. Utanríkisráðherra er í hverjum mánuði á biðilsbuxunum í Brussel. Hún hefur sakað andstæðinga sína um hræðslu og heimóttarskap og sagt að menn eigi einfaldlega að ganga í Evrópusambandið með „kassann út“ eins og hún orðar það,“ sagði Guðrún. Hún beindi spjótum sínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar. „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi. Ef utanríkisráðherra heldur áfram á þessari braut gæti farið fyrir henni eins og froskinum í dæmisögunni sem ætlaði sér að verða jafnstór og uxinn með því að þenja sig út. Við vitum hvernig sú saga endaði. Froskurinn sprakk í tætlur.“ Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins hófst með setningarræðu Guðrúnar á á Hilton Hótel Nordica í Reykjavík um hádegisleytið í dag. Hún hóf ræðu sína á minningarorðum um Davíð Oddsson, formann flokksins til þrettán ára, sem lést 1. mars síðastliðinn. Viðurkennir að flokkurinn fjarlægðist það sem gerði hann sterkan Í kjölfarið sneri hún sér að stjórnmálum líðandi stundar, og stöðu Sjálfstæðisflokksins í dag. Guðrún sagðist gera sér grein fyrir að margir sjálfstæðismenn væru óánægðir, ekki síst vegna samstarfsins við Vinstri græna frá 2017 til 2024. Hún sagði að kostirnir við stjórnarmyndun árið 2021 hefðu verið fáir. „Við verðum líka að viðurkenna eitt. Við fjarlægðumst um stund það sem áður gerði Sjálfstæðisflokkinn sigursælan og sterkan.Við misstum sjónar á því fyrir hvað við stöndum. Þess vegna vil ég segja það skýrt hér í dag: Það mun ekki gerast aftur,“ sagði hún. Áhugaleysi um utanríkisráðherra í Washington Guðrún fjallaði nokkuð um utanríkismál í ræðu sinni. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn ávallt hafa ræktað samstarfið Bandaríkin, sem hún sagði okkar helstu vinaþjóð. Hún vill meina að það sama eigi ekki við um núverandi ríkisstjórn sem hafi grafið undan sambandinu við Washington. „Það sést best á því að í Washington ríkti nýverið algjört áhugaleysi um komu utanríkisráðherra Íslands. Það er áhyggjuefni á óvissutímum.“ Viðreisn með Samfylkingu í aftursætinu og Ingu í skottinu Guðrún sagði mikilvægt að umræða um Evrópusambandið færi fram á réttum forsendum. Aðildarviðræður væru ekki til þess að sjá hvað væri í pakkanum, heldur væri markmið þeirra ávallt að ganga í sambandið. Innan ESB myndi Ísland til dæmis missa stjórn á fiskimiðunum og íslenskur landbúnaður yrði í hættu. „Ísland gæti ekki lengur haft sína eigin tollastefnu eða gert fríverslunarsamninga við önnur ríki. Slíkir samningar yrðu gerðir af ESB fyrir okkar hönd. Ísland yrði í aftursætinu. Rétt eins og Samfylkingin er í aftursætinu hjá Viðreisn, með Ingu Sæland í skottinu,“ sagði Guðrún og fór svo með áðurnefnda froskadæmisögu.
Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Evrópusambandið Andlát Davíðs Oddssonar Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira