Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2026 07:44 Aðrir evrópskir leiðtogar virðast treysta Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, um það bil jafnlangt og þeir geta kastað honum. Hann er sagður hafa lekið upplýsingum af leiðtogaráðsfundum beint í rússneskan starfsbróður hans. Vísir/EPA Evrópusambandið takmarkar nú hvers konar trúnaðarupplýsingar Ungverjar fá aðgang að og leiðtogar velja að hittast í smærri hópum vegna gruns um að stjórn Viktors Orbán leki upplýsingum í Rússa.
Washington Post fjallaði um helgina um að ríkisstjórn Orbán hefði haldið nánum tengslum við Kreml jafnvel eftir að innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2022. Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, hefði jafnvel haft beint samband við Sergei Lavrov, rússneska starfsbróður hans, í fundarhléum þegar evrópskir leiðtogar hittust. Gabrelius Landsbergis, fyrrverandi utanríkisráðherra Litháens, segir við evrópska blaðið Politico að hann hafi verið varaður við því árið 2024 að Ungverjum væri ekki treystandi fyrir trúnaðarupplýsingum sem tengdust hagsmunum Rússa og því hefði hann og starfssystkini hans verið orðvör þegar Szijjártó var á fundum með þeim. „Við töluðum aðeins á formlegum nótum en hittumst síðan síðar í minni hópum án Ungverjalands til þess að ræða sameiginlegar ákvarðanir fundarins,“ segir Landsbergis um NATO-fund sem var haldinn í Vilníusi árið 2023. Segja fréttirnar til marks um örvæntingu andstæðinga Orbán Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að það ætti ekki að koma neinum á óvart að menn Orbán upplýsi Rússa um allt sem kemur fram á leiðtogaráðsfundum ESB. „Við höfum haft okkar grunsemdir um langa hríð. Þess vegna tek ég aðeins til máls þegar það er algerlega nauðsynlegt og segi aðeins það sem er bráðnauðsynlegt,“ skrifaði Tusk á samfélagsmiðli í gær. Ungverjar þvertaka fyrir ásakanirnar. Szijjártó sakar Washington Post um að dreifa fáránlegum samsæriskenningum en János Bóka, Evrópumálaráðherra, segir frétt blaðsins „falsfrétt“ sem beri keim af örvæntingu vegna þess að Fidesz-flokki Orbán vaxi ásmegin í aðdraganda kosninga sem fara fram i næsta mánuði. Politico hefur eftir heimildarmönnum sínum innan Evrópusambandsins að það ætli ekki að bregðast formlega við upplýsingum um meintan leka Ungverja til Rússa. Ástæðan sé sú að það vilji ekki hafa áhrif á þingkosningarnar í landinu. Rætt um að sviðsetja banatilræði til að hjálpa Orbán Því var einnig haldið fram í umfjöllun Washington Post um helgina að rússneska leyniþjónustan hefði lagt á ráðin um hvernig hún gæti hjálpað Orbán í kosningunum. Forsætisráðherrann hefur átt undir högg að sækja í skoðanakönnunum. Á meðal þess sem Rússar eru sagðir hafa rætt um var að setja á svið banatilræði við Orbán sem gæti gefið honum samúðarfylgi kjósenda.
Evrópusambandið Ungverjaland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira