Erlent

Íranir segja engar við­ræður við Trump-liða eiga sér stað

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra. Trump sagði á viðburði í dag að Hegseth hefði verið mikil til í að gera árásir á Íran þegar umræðan um það hófst í Hvíta húsinu.
Donald Trump og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra. Trump sagði á viðburði í dag að Hegseth hefði verið mikil til í að gera árásir á Íran þegar umræðan um það hófst í Hvíta húsinu. AP/Mark Schiefelbein

Ýmsir ráðamenn í Íran segja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa sagt ósatt í dag. Þeir segja engar viðræður við Bandaríkjamenn eiga sér stað en fyrr í dag sagði Trump að viðræður hefðu gengið vel á undanförnum dögum og því hefði hann gefið þá skipun að stöðva árásir á orkuinnviði í Íran í nokkra daga.

Seinna í dag hélt Trump því svo fram að viðræður við Írani hefðu staðið yfir um nokkuð skeið og að hann teldi mögulega stutt í samkomulag.

„Þeir vilja frið. Þeir hafa samþykkt að koma ekki upp kjarnorkuvopnum, þið vitið, og svo framvegis og svo framvegis, en við sjáum til,“ sagði Trump í dag samkvæmt AP fréttaveitunni.

Sjá einnig: Gerir hlé á á­rásum á Íran

Eins og áður segir hafa háttsettir embættismenn í Íran sagt að viðræður hafi ekki farið fram við Bandaríkjamenn. Þingforseti Íran og talsmaður utanríkisráðuneytisins eru meðal þeirra sem hafa haldið þessu fram.

Fregnir hafa hins vegar borist af því að ráðamenn í öðrum ríkjum hafi verið að miðla skilaboðum milli Bandaríkjamanna og Írana.

Wall Street Journal hefur eftir Trump að Bandaríkjamenn eigi í viðræðum við „háttsettan leiðtoga“ í Íran. Hans fólk hafi haft samband við ríkisstjórn Trumps og sagðist hann telja umræddan leiðtoga þann virtasta í Íran, af þeim sem eru enn lifandi. Hann vildi ekki segja hvern um væri að ræða, þar sem sá ætti á hættu að vera ráðinn af dögum.

„Þeir vilja gera samkomulag og við erum mikil til í það,“ sagði Trump.

„Við sjáum hvernig þetta fer. Ef þetta fer vel útkljáum við þetta. Annars munum við bara halda áfram að sprengja áfram af hjartans kröftum.“

Þetta sagði hann eftir að honum var bent á að embættismenn í Íran hefðu sagt að viðræður hefðu ekki átt sér stað.

Ætlar kannski að stjórna Hormússundi með æðstaklerknum

Trump gaf einnig til kynna í dag að ef samkomulag myndi nást, yrði Hormússund opið fyrir skipaumferð á nýjan leik og það gæti gerst mjög fljótt.

Þá hélt hann því fram að sundinu yrði stjórnað í sameiningu, kannski. Hann myndi mögulega sjálfur stjórna sundinu með æðstaklerki Íran, sama hver hann væri.

Það yrðu einnig alvarleg stjórnarskipti, enda væri búið að ráða flesta ráðamenn í Íran af dögum. Það fæli sjálfkrafa í sér stjórnarskipti. Þá vísaði hann til Venesúela og hversu vel það hefði gengið, eftir að Bandaríkjamenn numu Nicolás Maduro, fyrrverandi forseta, á brott.


Tengdar fréttir

Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund

Ísraelsmenn gerðu umfangsmiklar árásir á Tehran, höfuðborg Íran, í morgun. Sprengingar heyrðust víða í borginni en talsmenn hersins sögðu innviði tengda hryðjuverkum skotmörk árásanna.

Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana.

Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“

Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×