Íþróttabærinn Akranes – meira en aðstaða, þetta er líf Liv Åse Skarstad skrifar 25. mars 2026 10:30 Á Akranesi eru íþróttir ekki bara eitthvað sem gerist eftir skóla, ekki bara æfingar sem eru tikkaðar af á stundatöflu eða leikir sem eru spilaðir um helgar, heldur hluti af lífinu sjálfu, hluti af því hvernig við tengjumst, hvernig við byggjum upp fólk og hvernig við verðum að samfélagi – og það er eitthvað sem ég hef sjálf fengið að upplifa svo sterkt frá því að við fluttum hingað. Ég gleymi seint þessum árum þegar ég mætti á hvern einasta fótboltaleik hjá eldri syni mínum, ekki ein heldur með þrjú lítil börn í eftirdragi, eitt fjögurra ára sem var sannfært um að það ætti sjálft að vera inni á vellinum og reyndi reglulega að hlaupa inn á, eitt tveggja ára sem hafði engan áhuga á leiknum og tók frekar sprett í hina áttina, og svo eitt nýfætt í vagninum – og ég einhvers staðar þarna á milli, að reyna að halda utan um þetta allt, klappa, hvetja og vera til staðar, svona eins og maður gerir þegar maður er orðin hluti af þessari óskrifuðu en mjög lifandi menningu sem fylgir því að vera „fótboltamamma“. Þetta voru líka árin þegar ég var oft ein með allt á herðunum, þegar Keli minn var mánuð í einu á sjó og mánuð heima, og þá varð þetta einfaldlega hluti af rútínunni – að mæta, standa vaktina og styðja barnið sitt – en það sem ég áttaði mig kannski ekki alveg á á þeim tíma var að á meðan allt þetta var í gangi var ég líka að eignast eitthvað miklu stærra, ég var að eignast tengsl, vináttu og samfélag, foreldra á hliðarlínunni, þjálfara og sjálfboðaliða, og allt í einu var þetta orðið eins og heilt þorp sem maður tilheyrði. Og kannski er það einmitt þetta sem er kjarninn í íþróttalífinu á Akranesi – ekki bara aðstaðan eða árangurinn, heldur fólkið, tengslin og allt það sem gerist á milli leikja, æfinga og móta, allt það sem mótar okkur sem samfélag. Við höfum á undanförnum árum byggt upp aðstöðu sem er til fyrirmyndar og það er ekki sjálfgefið, þetta er afrakstur markvissrar uppbyggingar og metnaðar; knattspyrnuhöll sem hefur þjónað okkur vel þó hún sé farin að kalla á endurnýjun, glæsilegt fimleikahús, fjölnota íþróttahús, reiðhöll, golfvöll og keilusal – og það sem er kannski mikilvægast er að þetta eru ekki bara mannvirki á blaði heldur lifandi rými í stöðugri notkun, svo mikilli að stundaskrárnar eru víða orðnar fullar og erfitt að bæta við fleiri tímum. Það er auðvitað ákveðið lúxusvandamál – en á sama tíma mjög skýr áminning um að við megum ekki staldra við, við megum ekki hugsa „nú er þetta komið gott“, heldur þurfum við að halda áfram að horfa fram á veginn og spyrja okkur: hvað næst? Og þar blasir næsta stóra skref við – innisundlaug. Við erum einfaldlega komin á þann stað að við getum ekki beðið lengur, því þó svo að sundfélagið okkar hafi beðið lengi eftir bættri aðstöðu þá snýst þetta mál um svo miklu meira en eitt félag, þetta snýst um samfélagið allt, um börnin sem þurfa að læra að synda og öðlast öryggi í vatni, um skólasamfélagið sem þarf góða aðstöðu til kennslu, um eldri borgara sem vilja halda sér virkum og um fjölskyldurnar sem vilja eiga saman góðar stundir í sundi, því sundlaugar á Íslandi eru ekki bara staðir þar sem fólk syndir, þær eru eins konar opin stofa samfélagsins þar sem fólk hittist, ræðir málin, hlær, slakar á og tengist – og það er menning sem við eigum að vera stolt af og hlúa að. Samhliða þessu þurfum við líka að leyfa okkur að hugsa stórt og horfa til þeirra tækifæra sem kunna að skapast, eins og hugmyndir um að byggja upp aðstöðu sem gæti styrkt Akranes enn frekar sem íþróttabæ og áfangastað, hvort sem það er í gegnum golfið eða aðrar greinar, því íþróttir eru ekki bara kostnaður – þær eru fjárfesting í fólki, í heilsu, í samkennd og í framtíð. En þegar öllu er á botninn hvolft er þetta kannski einfaldara en það hljómar. Afreksfólk verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þar sem börn fá tækifæri, þar sem félög fá stuðning, þar sem foreldrar mæta á hliðarlínuna og þar sem samfélagið allt stendur saman um að skapa umhverfi þar sem fólk getur blómstrað á sínum forsendum. Við höfum byggt upp sterkan grunn á Akranesi, grunn sem byggir á samstöðu, dugnaði og ástríðu fyrir því að gera vel, og nú snýst verkefnið ekki um að byrja frá grunni heldur einfaldlega um að halda áfram – með sama krafti, sama hjarta og sömu trú á því að það sem við erum að gera skipti máli. Akranes er íþróttabær og það er okkar allra að passa upp á að hann verði það áfram. Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar og frjálsra á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akranes Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Sjá meira
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun