Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Kjartan Kjartansson skrifar 27. mars 2026 08:39 Donald Trump þegar hann ræddi við fréttamenn á ríkisstjórnarfundi í gær. Hann fór þar rasískum orðum um sómölsku þjóðina. AP/Alex Brandon Forseti Bandaríkjanna lýsti Sómölum sem „heimsku fólki“ sem stælu af Bandaríkjamönnum og kæmu frá „viðbjóðslegu“ landi þegar hann ræddi við fréttamenn í gær. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn hefur uppi rasísk gífuryrði um Sómali og land þeirra.
Donald Trump ræddi við blaðamenn á ríkisstjórnarfundi í gær en hann var að nafninu til um stríðsrekstur Bandaríkjastjórnar gegn Íran. Talið barst hins vegar að Minnesota-ríki þangað sem alríkisstjórn Trump sendi vopnað lið í vetur í stærstu innflytjendarassíu seinni ára í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir því Minnesota varð fyrir valinu sem skotmark aðgerðanna virðist að minnsta kosti að hluta til vera gremja Trump vegna umfangsmikilla fjársvikamála sem tengjast góðgerðastarfi í Minnesota þar sem fólk af sómölskum uppruna var á meðal gerenda. Trump og bandamenn hafa þó stórlega ýkt umfang þess. Trump: "In Minnesota, it's very Somalia-oriented. These people come from a crooked country, disgusting country, one of the worst countries in the world. They come to our country -- low IQs -- and they rob us blind. Stupid people, and they rob us blind."[image or embed]— Aaron Rupar (@atrupar.com) March 26, 2026 at 3:53 PM Lýsti Trump Minnesota sem afar „Sómalíumiðuðu“ á fundinum í gær. „Þetta fólk kemur frá spilltu landi, ógeðslegu landi, einu af versta landi í heimi, sem viðurkennt er að sé á meðal verstu landa í heimi, sumir segja versta landi í heimi. Það á engan pening, það á ekkert. Það kemur inn í landið okkar, með lága greindarvísitölu, og það rýir okkur inn að skinni. Heimskt fólk og það rýir okkar inn að skinni,“ sagði Trump. Forsetinn sagði spilltan dómsmálaráðherra Minnesota ástæðu þess að þessir þjófóttu Sómalir, að hans mati, kæmust upp með glæpi sína. Vísaði hann þar til Keith Ellison, dómsmálaráðherra Minnesota. Hann er demókrati og svartur. Óbeit á þingkonu af sómölskum uppruna Trump hefur ítrekað farið ófögrum orðum um Sómalíu og Sómali á undanförnum misserum. Sómalía var ennfremur eitt þeirra ríkja sem Trump lýsti sem „skítalöndum“ á fyrra kjörtímabili hans eins og frægt er orðið. Þá hefur hann sérstaka óbeit á Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingkonu Demókrataflokksins frá Minnesota. Hún kom sem hælisleitandi til Bandaríkjanna frá Sómalíu þegar hún var þrettán ára gömul. Omar var ein fjögurra þingkvenna demókrata sem Trump sagði að ættu að fara „heim til sín“ árið 2019 þrátt fyrir að Omar væri sú eina þeirra sem væri fædd utan Bandaríkjanna. Hinar þrjár áttu það sameiginlegt að vera ekki hvítar.
Donald Trump Bandaríkin Sómalía Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira