Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Samúel Karl Ólason skrifar 27. mars 2026 09:36 Donald Trump og Scott Bessent. Undirskriftir þeirra eiga að prýða bandaríska seðla. EPA/YURI GRIPAS Undirskrift Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, verður sett á eins dals seðla í Bandaríkjunum og mögulega fleiri seðla en það þykir enn óljóst. Verður hann fyrsti forseti Bandaríkjanna til að hljóta þann heiður en nafni Trumps hefur verið bætt á hina ýmsu hluti vestanhafs að undanförnu.
Scott Bessent, fjármálaráðherra, sagði í yfirlýsingu í gær að ekki væri til öflugri leið til að viðurkenna afrek Bandaríkjanna undanfarin 250 ár og afrek Donalds Trump, samkvæmt frétt New York Times. Í yfirlýsingunni segir Bessent að undir stjórn Trumps stefni Bandaríkin að fordæmalausum hagvexti og varandi yfirburðum gjaldeyris Bandaríkjanna, efnahagsstyrk og stöðugleika. Nafn Bessents verður einnig á seðlinum en nöfn hans og Trumps munu koma í stað nafns mintsláttumanns Bandaríkjanna, sem heitir nú Brandon Beach. Nafn þessa embættismanns hefur verið á seðlinum í meira en hundrað ár. Beach tekur vel í þessa breytingu og vísar til þess að Bandaríkjamenn séu nú að ganga inn í nýja „gullöld“. In celebration of America’s 250th anniversary, President Donald J. Trump’s signature alongside @SecScottBessent's will soon appear on U.S. currency, marking a first in history, and symbolizes @POTUS' leadership and dedication to our great nation will carry a lasting impact.…— U.S. Treasurer Brandon Beach (@TreasurerBeach) March 26, 2026 Frá því hann tók aftur við embætti forseta í fyrra hefur Trump varið miklu púðri í að koma nafni sínu á sem flesta hluti og stofnanir í Bandaríkjunum, auk þess sem hann hefur reynt að setja mark sitt á Bandaríkin, Hvíta húsið og embættið með öðrum hætti. Má þar nefna: The John F. Kennedy memorial center for the performing arts, sem heitir nú „The Donald Trump and The John F. Kennedy memorial center for the performing arts. Friðarstofnunina svokölluðu sem heitir nú Donald J. Trump Friðarstofnun Bandaríkjanna. Nýja tegund herskipa sem eiga að bera nafn Trumps, þó að fyrsta skipið í flokknum muni heita Defiant en flokkar bera yfirleitt nafn fyrstu skipanna. Trump gold card, sem eru kort sem auðugir innflytjendur geta greitt fyrir og fengið ríkisborgararétt með því. TrumpRx, sem er opinber vefsíða þar sem fólk á að geta fengið ódýrari lyf. Þá stendur til að nefna nýja tegund herþota X-47, eftir Donald Trump, sem er bæði 45. og 47. forseti Bandaríkjanna. Trump hefur einnig viljað setja mynd af sér á og George Washington á aðgangspassa fyrir þjóðgarða í Bandaríkjunum. Engin hefð hefur verið fyrir því en passarnir hafa alltaf verið skreyttir með myndum úr þjóðgörðum. Ríkisstjórn Trumps hefur einnig reynt að fá Dulles-flugvöllinn í Washington DC nefndan í höfuðið á honum. Flugvöllurinn er nefndur í höfuð Johns Foster Dulles, sem var utanríkisráðherra í forsetatíð Dwights D. Eisehhower. Á hans fyrsta kjörtímabili skreytti undirskrift Trumps ávísanir sem sendar voru til allra Bandaríkjamanna vegna faraldurs Covid. Trump hefur þar að auki viljað gera miklar breytingar á Washington DC. Hann hefur til að mynda látið rífa hluta Hvíta hússins og er að láta reisa stærðarinnar veislusal við hlið forsetahallarinnar. Sjá einnig: Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina Hann er einnig að láta gera miklar breytingar á Kennedy Center og hann vill einnig láta reisa stóran sigurboga í höfuðborginni, sem hann segir að verði mun fallegri en sigurboginn í París.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira