Lið Orra kvartar undan Porto: Eitruð og sterk lykt í klefanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 07:30 Orri Freyr Þorkelsson fór á kostum í sigri Sporting á Porto á laugardaginn. Leikurinn hefur dregið dilk á eftir sér. getty/Gualter Fatia Eftir sigurinn á Porto birti handboltalið Sporting harðorða yfirlýsingu þar sem félagið gagnrýndi mótherja sinn harðlega fyrir óíþróttamannslega framkomu og kvartaði sérstaklega yfir ólykt í búningsklefa liðsins.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði ellefu mörk þegar Sporting sigraði Porto, 30-33, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í portúgalska handboltanum á laugardaginn. Leikurinn hófst tuttugu mínútum of seint þar sem mikill og ertandi óþefur var í búningsklefa Sporting. Vegna hans þurftu þjálfarinn Richardo Costa og leikmaðurinn Christian Moga aðstoð læknis. Costa stýrði Sporting ekki í leiknum á laugardaginn og Moga spilaði ekki með. Sporting lýsti yfir andstöðu sinni við að leikurinn færi fram en nauðsynleg skilyrði voru fyrir hendi svo hægt væri að flauta til leiks eins og fram kemur í harðorðri yfirlýsingu Sporting sem félagið sendi frá sér í gær. Comunicado #SportingCP sobre as sucessivas ações que o FC Porto tem vindo a protagonizar nos últimos tempos.👉 https://t.co/L6ZnJUGLrW pic.twitter.com/AhPUvVW86W— Sporting CP (@SportingCP) March 29, 2026 Í yfirlýsingunni gagnrýnir Sporting framferði Porto og óskar tafarlaust eftir fundi með íþróttamálaráðherra Portúgals. Sporting segir ótækt ef framkoma Porto hefur engar afleiðingar fyrir félagið. Sporting segir að svara þurfi aðgerðunum af fyllstu hörku. Földu bolta og stálu handklæðum Samkvæmt yfirlýsingunni reyndi Porto að hafa áhrif á annan dómara leiksins, Fábio Veríssimo, með því að sýna ítrekað myndir af ákvörðunum hans í búningsklefa dómaranna til að freista þess að hafa áhrif á hann. Þá sakar Sporting boltastráka Porto um að fela ítrekað bolta og keilur bak við auglýsingaskilti og stela handklæðum af markvörðum sínum. Glæpsamlegt athæfi Steininn tók hins vegar úr þegar kom að lyktinni í búningsklefa Sporting. Í yfirlýsingu félagsins segir að eitruð og sterk lykt hafi haft áhrif á líkamlegt ástand leikmanna liðsins og starfsfólks þess. Það sé ekki bara miður heldur glæpsamlegt. Sporting segir þessa framkomu Porto ólíðandi. Hún sé endurtekin og óíþróttamannsleg og það beri að refsa fyrir hana. Þorsteinn Leó Gunnarsson, samherji Orra í íslenska landsliðinu, leikur með Porto og skoraði þrjú mörk í leiknum á laugardaginn. Næstu leikir Sporting eru gegn pólska liðinu Wisla Plock í umspili um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikur liðanna fer fram í Portúgal á fimmtudaginn en sá seinni í Póllandi 9. apríl. Næsti leikur Porto er ekki fyrr en 11. apríl þegar liðið tekur á móti Stiven Tobar Valencia og félögum í Benfica.
Handbolti Portúgal Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira