Kerfisbreytingar mega ekki bitna á börnum Steinunn Bergmann skrifar 30. mars 2026 14:00 Á undanförnum misserum hefur komið fram gagnrýnin umræða meðal fagfólks sveitarfélaga og félagasamtaka um þjónustu við börn á flótta. Í kjölfar ákvörðunar stjórnvalda um að færa þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd frá sveitarfélögum yfir til Vinnumálastofnunar hafa félagsráðgjafar og aðrir sérfræðingar ítrekað vakið athygli á alvarlegum áhyggjum vegna breytinganna. Spurningin er einföld en mikilvæg: Er Vinnumálastofnun, réttur vettvangur til að mæta flóknum þörfum barna sem hafa upplifað áföll og krefjandi aðstæður? Þekking glatast og börn gjalda fyrir Fyrir ári sagði Vinnumálastofnun upp samningi við sveitarfélög um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Sveitarstjórnarfólk lýsti yfir miklum áhyggjum og áréttað var að innan sveitarfélaganna hefði byggst upp mikilvæg reynsla og þekking innan málaflokksins . Afleiðingarnar komu fljótt í ljós og misstu börn á flótta aðgang að frístunda- og íþróttastarfi. Vinnumálastofnun býr ekki yfir sömu innviðum og sveitarfélög þegar kemur að því að mæta þörfum barna. Mikilvægt er að hafa í huga að lög nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og barnaverndarlög nr. 80/2002 ná til allra barna sem dvelja á yfirráðasvæði íslenska ríkisins. Sama gildir um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var settur í lög hér á landi árið 2013 með lögum nr. 19/2013 og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem einnig hefur verið settur í lög samanber lög nr. 80/2025. Því þarf að tryggja aðkomu viðeigandi sérfræðinga í þjónustu við börn á flótta og fjölskyldur þeirra en félagsráðgjafar hafa yfirgripsmikla þekkingu á þessu sviði. Margir félagsráðgjafar innan félagsþjónustu sveitarfélaga hafa sérhæft sig í að sinna börnum á flótta og fjölskyldum þeirra. Þeir starfa út frá heildarsýn, menningarnæmni og áfallamiðaðri nálgun þar sem sjónum er beint að barninu, þörfum þess og fjölskyldu. Tryggja þarf lögbundna skólagöngu en einnig tækifæri til félagslegrar þátttöku þar sem lögð er áhersla á félagsfærni, samkennd og leik með aðgengi að íþróttum, listum og öðru frístundastarfi. Þjónusturof við kerfisbreytingar Við kerfisbreytingar, líkt og hafa átt sér stað með færslu þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd frá sveitarfélögum til Vinnumálastofnunar skapast hætta á þjónusturofi fyrir viðkvæma hópa, sérstaklega börn og ungmenni. Um er að ræða flókna og umfangsmikla þjónustu. Nauðsynlegt er að tryggja að viðkæmir hópar fái fullnægjandi stuðning og þjónustu til að koma í veg fyrir félagslega mismunum sem getur haft alvarlegar afleiðingar, einkum fyrir börn og ungmenni. Fagleg sjónarmið: Hvað þarf að vera til staðar? Heildstæð sérfræðiþekking þarf að vera til staðar svo hægt sé að mæta börnum á flótta á viðeigandi faglegan hátt. Félagsráðgjöf, áfallamiðuð nálgun og menningarnæmni eru forsendur þess að börn upplifi sig örugg og að þörfum þeirra sé mætt. Sérhæfð þjónusta við börn, þar sem litið er til andlegrar heilsu, félagslegrar þátttöku og námslegrar aðlögunar, er ekki viðbót við þjónustuna heldur kjarni hennar. Mannréttindi barna, þar á meðal réttur þeirra til þátttöku í samfélaginu og til verndar gegn mismunun, verður að vera leiðarstef í öllu skipulagi slíkrar þjónustu. Lokaorð Hvati til breytinganna virðist byggja á fjárhagslegri hagkvæmni. En í þessum málaflokki eru það börn, sem þegar hafa gengið í gegnum áföll og óvissu, sem gjalda þegar kerfið bregst. Þjónusta við börn á flótta verður að vera í höndum fagfólks með rétta sérfræðiþekkingu, í viðeigandi umhverfi og úrræði sem mæta þörfum þeirra. Kjarnastarfsemi Vinnumálastofnunar hefur fyrst og fremst snúið að þjónustu við fullorðna einstaklinga á vinnumarkaði en ekki að veita börnum á flótta þá sérhæfða þjónustu sem aðstæður þeirra kalla á. Höfundur er formaður Félagsráðgjafafélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Flóttafólk á Íslandi Skóla- og menntamál Barnavernd Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar