Í bataferli frá fíkninni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. mars 2026 13:59 Breska tónlistarstjarnan Lola Young hefur átt erfitt ár en er að koma fílefld til baka inn í bransann eftir mikla sjálfsvinnu. Amy Sussman/Getty Images for Vanity Fair Breska ungstirnið Lola Young skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf út smellinn Messy árið 2024 en lagið náði gríðarlegum vinsældum um allan heim. Lola seldi upp á tónleika víða og kom fram á ýmsum tónlistarhátíðum en þurfti að draga sig í hlé eftir að hafa misst meðvitund á sviði.
Þetta gerðist í New York síðastliðið haust. Þá hafði hún kastað upp fyrir framan tugþúsundir áhorfenda á tónlistarhátíðinni Coachella nokkrum mánuðum áður. Lola Young, sem er fædd árið 2001, opnaði sig nýverið í fyrsta sinn um erfiðleika sína gagnvart fíknisjúkdómi og segist hafa átt í erfiðleikum með eiturlyf. „Ég vil ekki segja of mikið um þetta bara svona fyrir mitt einkalíf en bataferlið er í fullum gangi hjá mér núna. Ég er ekki búin að ná algjörum bata en mér líður alveg mikið betur.“ Eftir tónleikana í New York í fyrra ákvað hún að taka pásu til að vinna í sínum málum. „Ég elska þetta starf og tek hvorki verkefnum mínum né áhorfendum sem sjálfsögðum hlut. Mér þykir þetta ofboðslega leitt. Ég vona að þið gefið mér annað tækifæri í framtíðinni,“ skrifaði Lola meðal annars á Instagram hringrás sinni á sínum tíma. Tónlistarárið 2026 byrjaði svo af krafti hjá þessari hæfileikaríku söngkonu. Hún fann öflugan vinskap og stuðning hjá goðsögninni Elton John en hann hefur opinberlega deilt hrifingu sinni á Lolu. View this post on Instagram A post shared by Elton John (@eltonjohn) Lola fór svo heim með Grammy verðlaun í febrúar fyrir bestu sóló frammistöðu í popptónlist. Hún var með vel heppnað atriði á hátíðinni og virðist allt stefna upp á við. „Ég veit ekki hvað ég get sagt annað en takk kærlega fyrir. Eins og þið sjáið á andlitinu mínu þá er ég ofboðslega þakklát fyrir þetta,“ sagði Lola og táraðist þegar hún tók á móti verðlaununum. Hún kom fram á vel heppnuðum tónleikum í Los Angeles fyrir viku síðan og segir listina gríðarlega mikilvægt uppreisnartól í hörðum heimi. „Þegar tónleikunum lauk horfði ég í spegil og sagði loks við sjálfa mig: „Ég er stolt af þér“ og það var ótrúlega góð tilfinning,“ skrifaði hún meðal annars á Instagram. View this post on Instagram A post shared by 𝕿𝖍𝖊𝖊 𝕷𝖔𝖑𝖆 𝖄𝖔𝖚𝖓𝖌 (@lolayounggg)
Fíkn Tónlist Bretland Hollywood Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira