Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Árni Sæberg skrifar 31. mars 2026 13:52 Fólkið fannst látið á Edition hótelinu. Vísir/Anton Brink Frönsk kona sem grunuð eru um að hafa myrt eiginmann sinn og dóttur á Edition-hótelinu síðasta sumar sætir áframhaldandi farbanni til 27. apríl næstkomandi. Mál hennar er komið aftur á borð Héraðssaksóknara, eftir að hafa verið sent lögreglu til frekari rannsóknar í febrúar.
Þetta segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi. Málið sé nýkomið aftur til embættisins og úrskurður um áframhaldandi gæsluvarðhald hafi verið kveðinn upp á sunnudag. Konan hefur sætt farbanni frá 4. september, þegar hún losnaði úr gæsluvarðhaldi, og hefur kært nýjasta farbannsúrskurðinn til Landsréttar, að sögn Ólafs Hauks. Farbannið átti að renna út í gær. Það var þann 14. júní í fyrra sem frönsk feðgin fundust látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu við hafnarbakkann í Reykjavík. Eiginkona og móðir hinna látnu játaði á vettvangi að hafa drepið þau, hefði svo ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðan þá hefur konan breytt afstöðu sinni og neitar sök. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lauk rannsókn sinni á málinu þann 20. janúar og Héraðssaksóknari tók þá til skoðunar hvort tilefni væri til að gefa út ákæru á hendur konunni. Þann 24. febrúar var greint frá því að Héraðssaksóknari hefði sent málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. „Það voru nokkrir lausir endar sem átti eftir að hnýta,“ sagði Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við Vísi þá. Nú hafa þeir lausu hnútar verið hnýttir og Héraðssaksóknari tekur aftur til skoðunar hvort ákæra verði gefin út.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Sjá meira