Körfubolti

Hamar/Þór að ganga frá ná­grönnunum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hamar/Þór ætlar að halda sínu sæti í Bónus deildinni. 
Hamar/Þór ætlar að halda sínu sæti í Bónus deildinni.  vísir/Anton

Eftir 60-102 stórsigur er Hamar/Þór komið í vænlega 2-0 stöðu gegn Selfossi í undanúrslitum umspilsins upp á sæti í Bónus deild kvenna.

Hamar/Þór vann fyrsta leikinn á sínum heimavelli 96-70 og sigurinn varð enn stærri á útivelli.

Selfyssingar áttu aldrei séns og þurftu snemma að játa sig sigraða. Hamar/Þór fær núna þrjár tilraunir til að loka einvíginu og halda áfram í úrslitaeinvígið.

Jadakiss Nashi Guinn var stigahæst hjá Hamar/Þór í kvöld með 21 stig. Jovana Markovic greip flest fráköst eða 12 talsins. Mariana Duran gaf svo flestar stoðsendingar, 8 talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×